Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar 9. október 2026 14:30 Þá er snarpri lotu um kjaramál lokið, lotu sem hófst í mars 2024 þegar kjarasamningar á almennum markaði voru undirritaðir. Í þá samninga fóru mörg stéttarfélög innan ASÍ saman undir heitinu Breiðfylkingin og markmiðið var sameiginlegt, ná átti niður verðbólgu og vöxtum með gerð kjarasamninga sem myndu innihalda skýr markmið um þessi atriði. Sett voru viðmið um verðbólgu fyrir árið 2025 og 2026 og eins voru sett viðmið um stýrivexti á sömu tímum. Þá strax heyrðist úr hásæti seðlabankastjóra að það væri algerlega bannað að ætlast til að markmið yrðu sett um stýrivexti, ekki mátti setja fram væntingar sem gætu orðið til þess að „sjálfstæði“ seðlabankastjóra um að halda þeim í hæstu hæðum væri á einhvern hátt „stýrt“. Þegar viðræður voru talsvert vel á veg komnar valdi hluti stéttarfélaga innan breiðfylkingarinnar að falla frá kröfu um stýrivexti og eins að veikja markmið um verðbólgu með því að hækka markmiðið og bæta inn öðrum vísitölureikning. Þetta varð til þess að breiðfylkingin klofnaði og VR og LÍV gengu úr henni og eftir varð nýja breiðfylkingin sem flýtti sér að skrifa undir samninga á þessum veikari nótum. Þeir samningar urðu síðan forskrift að öðrum kjarasamningum sökum þess að forsvarsmenn SA telja að allir samningar eigi að vera Copy/Paste. Markmið um verðbólgu 2025, 4,95%, stóðust og ekkert vandamál var. Árið 2026 var hins vegar fljótlega ljóst að litlar líkur væru á að markmið um 4,7% verðbólgu eða 4,4% sex mánaða verðbólgu kæmu varla til með að standast. VR og LÍV annars vegar og Fagfélögin hins vegar ákváðu að vinna saman að undirbúningi kjarasamninganna og í framhaldinu varð samstarfið nánara og traustara. Þegar ljóst var að forsendur kjarasamningsins voru brostnar var hafin mikil vinna til að sjá hvernig hægt væri að viðhalda samningnum og láta hann halda gildi sínu til loka. Boðaðir voru fundir með SA en því miður virtust áhyggjur þeirra ekki vera þær sömu og hjá stéttarfélögunum. Forsætisráðuneytið setti saman starfshóp með fulltrúum ASÍ og SA sem ætti að finna leiðir til að bjarga samningunum en vinna þess hóps fór mikið í greiningar en ekki eins í lausnir. Þegar síðan leið á haustið fóru að berast tillögur að lausnum frá ríkisstjórninni sem gáfu góðar vonir. Samt heyrðist lítið í SA hvað lausnir varðaði. Í lok september var mikið unnið hjá VR, LÍV og Fagfélögunum (VLF) í að koma með lausnir sem gætu bjargað kjarasamningunum, lausnir sem myndu hafa áhrif á að halda niðri verðbólgu. Við lögðum til tvöfalt forsenduákvæði, í lok mars og lok september, en það var ekki samþykkt. Til að koma til móts við SA lögðum við til annað forsenduákvæði þar sem í lok samnings, janúar 2028, kæmi launahækkun sem næmi mismun á 3,5% launahækkun í janúar 2027 og verðbólgunni í lok desember 2027 sem var hafnað. Við lögðum til eingreiðslur, fjölgun orlofsdaga, styttingu samnings miðað við verðbólgumarkmið en þessu var öllu hafnað af SA. Það var síðan á þriðjudagskvöldi 06. okt. sem forsvarsmenn SA funduðu með VLF og á þeim fundi þokaðist eitthvað og sá til sameiginlegrar sólar. Ákveðið var að funda aftur daginn eftir og lögðu fulltrúar VLF til við SA að þeir myndu líka boða SGS, Eflingu og Samiðn á fund þannig að hægt væri að ganga sameiginlega frá breytingum samningsins. Síðar um kvöldið bárust hins vegar þær fréttir til VLF að undirritun væri í gangi í höfuðstöðvum SA. Seinna var þá ljóst að SGS, Efling og Samiðn hafði, í stað þess að vinna með VLF, tekið upp vinnulagið frá samningunum 2024 og gengu frá samning við SA þar sem samningstíminn væri styttur um einn mánuð. Þetta varð til þess að það samtal sem komið var í gang milli VFL og SA hætti og því lítið um samskipti miðvikudaginn 7. október en frestur til að segja upp samningum átti síðan að renna út daginn eftir. Samt var viðræðum ekki slitið en sambandi haldið með síma og tölvupóstum. Þann 8. október héldu fundir áfram auk þess sem gengið var frá pappírum þar sem segja átti upp kjarasamning frá 2024 á grundvelli forsendubrests. Í hádeginu áttu forystumenn VLF fund með forsætisráðherra og í framhaldi af honum fóru viðræður við SA aftur í gang. Viðræðunefnd VLF fór þangað og við tóku mest stressandi tvær klukkustundir flestra. Viðræðum var fram haldið og lengi vel virtist sem ekki myndi nást samkomulag. Forsendunefnd kom saman og fundaði og niðurstaðan var að viðbragð taldist ekki mæta forsendubrestinum. Á þeim tíma var öllum ljóst að stefndi í uppsögn kjarasamningsins eftir um klukkustund. Nokkrum mínútum fyrir fjögur hófst síðan lokatilraun sem leiddi til þeirrar niðurstöðu að samningarnir héldu. Niðurstaðan var á þá leið að kjarasamningar VLF og SA styttast um allt að tvo mánuði og miðast við að ársverðbólga verði innan við 4,7% eða sex mánaða verðbólga innan við 4,4%. Það verður að minnast á þátt ríkisstjórnarinnar í þessu ferli öllu. Lagasetningar og breytingar ásamt hækkun barnabóta og sérstöku vaxtabótaframlagi sem gagnast þeim sem ekki hafa fengið vaxtabætur skiptu miklu máli. Leigubremsa og inngjöf í byggingar húsnæðis fyrir tekjulága höfðu einnig mikið að segja. Í stuttu máli má segja að þær kjarabætur sem náðust komu allar frá ríkisstjórninni. Nú tók hins vegar við eftirleikurinn. Forystumenn SGS og Eflingar gátu ekki á sér heilum tekið. Í stað þess að virða og fagna þeim breytingar á kjarasamning sem VLF hafði gert við SA þar sem hagsmunir félaga í VR, LÍV og Fagfélögunum voru hafðir að leiðarljósi nýttu þau tækifærið til að tala niður samninginn og er það miður. Það er ljóst að standi vilji stéttarfélaga til að bæta kjör launafólks er samvinna besta leiðin en ekki að rífast á opinberum vettvangi og tala hvort annað niður. Í stað þess að skrifa langa, neikvæða pistla um forystumenn annarra félaga er nær að setjast niður og vinna saman. Þetta kom bersýnilega í ljós í mikilli og sterkri samvinnu VR, LÍV og Fagfélaganna en á milli þessara félaga ríkti traust og það var gaman að sjá á fundum viðræðunefndarinnar hvernig menn töluðu sig niður á niðurstöðu og tekið var tillit til mismunandi sjónarmiða. Það er vonandi í kjarasamningaviðræðum framtíðarinnar haldi þessi góða samvinna áfram og ég vona heitt og innilega að fleiri félög sláist í þennan skemmtilega hóp. Það er rúmt ár þar til hefja þarf á ný viðræður um nýjan kjarasamning og undirbúningur VLF er þegar hafinn. Við fengum ekki allt sem við vildum frá SA. Hins vegar náðum við verðbólgumarkmiði í samninginn. Eins fengu félagsmenn VR, LÍV og Fagfélaganna réttindabætur með aðkomu ríkisstjórnarinnar þar sem forsætisráðherra, fjármálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra léku lykilhlutverk. Um leið og ég óska launafólki til hamingju ró á vinnumarkaði næsta rúma árið vil ég þakka þá miklu og sterku samvinnu og traust sem var á milli Fagfélaganna, LÍV og VR. Höfundur er stjórnarmaður í VR og sat í viðræðunefnd VR, LÍV og Fagfélaganna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjaramál Jónas Yngvi Ásgrímsson Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar