Áskorun

Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Nei við erum ekki að fara að tala um tengdamömmuna þína eða jafnvel þaðan af eldri sögur. Í dag beinum við sjónina að tengdamömmunni 2026 sem ert þú! Og já, viðurkenndu það bara, stundum sýður á þér eins og kjötsúpu...
Nei við erum ekki að fara að tala um tengdamömmuna þína eða jafnvel þaðan af eldri sögur. Í dag beinum við sjónina að tengdamömmunni 2026 sem ert þú! Og já, viðurkenndu það bara, stundum sýður á þér eins og kjötsúpu... Vísir/Getty

Við erum mögulega að stíga inn á mjög hættulegt svæði. Eldfimt. Óþægilegt. Jafnvel svo viðkvæmt umræðuefni að 50+ pör eiga erfitt með umræðuna.

Við erum að tala um tengdamömmusögurnar!

Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem hún átti það til að veita ykkur hér áður fyrr.

Nei; í þetta sinn snýst málið um tengdamömmuna 2026.

Sem í fullri hreinskilni er hlutverk sem krefst meiri sjálfstjórnar en strangasti megrunarkúr.

Sko… rýnum aðeins í málin.

Í fyrsta lagi: 

Hversu oft heyrir fólk góðan brandara um tengdapabba?

... En brandara um tengdamömmur?

Nákvæmlega. Svarið er það sama hjá öllum. Því svo virðist sem tengdapabbi fái nokkurn veginn að sitja í friði, dreypa á kaffinu, ræða færðina á vegum og yfirhöfuð að teljast stórkostlegur fjölskyldufaðir bara fyrir það eitt að mæta.

En um leið og orðið tengdamamma fellur spennast axlirnar í herberginu.

Rannsóknir sálfræðinga sýna að yfir 60% kvenna lýsa sambandinu við tengdamóður sína sem spennuþrungnu. Skýringin er hvorki sú að konur séu vondar né afbrýðisamar – heldur mætast þarna tvær framkvæmdastjórnir á sama heimilissviðinu. 

Tengdamæður eiga erfitt með að fara á eftirlaun sem yfirmenn heimilishalds og barnauppeldis, á meðan tengdadætur upplifa hvert einasta „saklausa ráð“ sem dulbúna falleinkunn.

Lokaðu munninum og…

En hér kemur kaldi veruleikinn fyrir okkur sem erum komin yfir fimmtugt:

Áður en við vitum af erum VIÐ orðin tengdamamman úr sögunum.

Við munum öll hvernig okkur fannst gamla settið dæma gardínurnar eða uppeldisaðferðirnar okkar. 

En bíddu bara þangað til sonurinn eða dóttirin mætir með nýja makann í sunnudagsmat. Þá finnurðu setningarnar byrja að krauma innra með þér eins og sjóðandi kjötsúpa:

„Nú, ætlar hún ekkert að smakka kjötið?“

„Eigið þið virkilega ekki almennilega ryksugu?“

„Bara... svona mikill skjátími?“

„Raðar hún virkilega hnífapörunum svona í uppþvottavélina?!“

Gullna reglan fyrir okkur 50+ er sáraeinföld, en svakalega erfið í framkvæmd: 

Lokaðu munninum,

 opnaðu veskið 

og hrósaðu matnum.

Ef þau biðja ekki beinlínis um ráð – bíttu þá í tunguna þar til blóðbragðið finnst. 

Ef þér líkar ekki hvernig þau elda, vertu fegin/n að þurfa ekki að vaska upp. 

Það eina sem tengdamamman 2026 þarf í raun að muna er að börnin okkar eiga fullan rétt á að gera sín eigin mistök, alveg eins og við gerðum hér sjálf í den.

50+

Tengdar fréttir

50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra?

Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.