Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar 7. október 2026 11:31 Í desember 2023 sagði Kristrún Frostadóttir, þá formaður Samfylkingarinnar: „Nú verður að milda höggið fyrir heimilin.“ Hún gagnrýndi að dregið væri úr stuðningi við skuldsett heimili og leigjendur á tímum hárra vaxta og verðbólgu. Vaxtabótakerfið næði einmitt til „tekjulægsta fólksins með þyngstu greiðslubyrðina“. Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er staðfest að vaxtabætur falla niður frá 1. janúar 2027. Mánudaginn 5. október spurði ég því forsætisráðherra á Alþingi hvað hefði breyst. Hvers vegna væri nú rétt að afnema stuðning sem hún hafði sjálf talið svo mikilvægan? Væri staða þessara heimila orðin svo góð að þau þyrftu ekki lengur á honum að halda? Við því fékkst ekki skýrt svar. Stuðningurinn hverfur og álögurnar aukast Eðlilegt er að endurskoða vaxtabótakerfið. En brottfall vaxtabóta verður að skoða í samhengi við aðrar breytingar fjárlagafrumvarpsins. Á sama tíma og mörg heimili missa stuðning standa þau frammi fyrir auknum álögum. Hækkanirnar lenda líka á fólkinu sem forsætisráðherra lýsti sem tekjulægsta fólkinu með þyngstu greiðslubyrðina. Forsætisráðherra vísaði til þess að fyrri ríkisstjórn hefði veikt kerfið og að fjármununum yrði beint í önnur úrræði, meðal annars hlutdeildarlán. Hún útskýrði hins vegar ekki hvaða stuðningur tæki við hjá þeim sem missa vaxtabæturnar. Nýtast úrræðin fólki sem þegar hefur keypt sér heimili og glímir við þunga greiðslubyrði? Að kerfi hafi veikst réttlætir ekki eitt og sér að afnema stuðninginn sem eftir stendur. Spurningin er hvað tekur við hjá fólkinu. Ábyrgur rekstur ríkissjóðs er grundvallaratriði. En það skiptir máli hvernig jafnvægi er náð og hver ber kostnaðinn. Markmið um hallalaus fjárlög leysir stjórnvöld ekki undan því að meta afleiðingarnar fyrir heimilin. Lægri verðbólga krefst samræmis Ábyrgð í ríkisfjármálum snýst einnig um að draga úr verðbólgu. Þegar ríki og sveitarfélög hækka gjaldskrár og skatta án samræmdrar stefnu aukast útgjöld heimilanna. Hækkanir sem mælast í vísitölu neysluverðs ýta henni jafnframt upp. Aðhald getur dregið úr eftirspurn og verðbólguþrýstingi. Því þarf að meta bæði þau áhrif og verðhækkandi áhrif gjalda og skatta. Velja þarf aðgerðir sem styðja við hjöðnun verðbólgu án óhóflegra byrða á viðkvæm heimili. Þetta er hugsunin að baki Heimilissátt Framsóknar: að milda álögur, meta samanlögð áhrif skatta, gjalda og bóta á ólíkar fjölskyldur og samræma gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga markmiðinu um lægri verðbólgu. Heimili og fyrirtæki þurfa fyrirsjáanleika til að skipuleggja útgjöld og fjárfestingar. Vonandi sér ríkisstjórnin að sér og leggur fram aðgerðir í þessa átt. Enn er svigrúm til að breyta frumvarpinu, verja viðkvæmustu heimilin og samræma ákvarðanir hins opinbera. Hefur ríkisstjórnin reiknað áhrifin? Brottfall vaxtabóta, gjaldahækkanir og frysting barnabóta og skerðingarmarka geta komið niður á sama heimilinu. Við bætast möguleg áhrif bankaskatts á lánskjör og verðlagsáhrif á verðtryggðar skuldir. Fjölskyldan stendur undir heildinni, þótt ákvarðanirnar séu kynntar hver í sínu lagi. Þess vegna spurði ég forsætisráðherra einnig hvort ríkisstjórnin hefði greint eða óskað eftir greiningu á samanlögðum áhrifum aðgerðanna á heimilin. Hún vísaði til greiningar frá sumrinu um aukinn kaupmátt frá árinu 2024. En liðinn kaupmáttarvöxtur svarar ekki spurningunni um kostnað nýrra aðgerða. Hvað þýðir frumvarpið fyrir einstætt foreldri, barnafjölskyldu með þung húsnæðislán eða tekjulágt par? Hver verður samanlögð byrði breytinganna? Hversu stórum hluta ráðstöfunartekna þurfa þessi heimili að verja í aukinn kostnað? Útreikningar okkar í Framsókn sýna að byrðin leggst hlutfallslega þyngst á tekjulágar fjölskyldur. Þær hafa minnst svigrúm til að mæta auknum útgjöldum og finna mest fyrir því þegar stuðningur minnkar samhliða hækkunum. Hvernig samræmist það loforðinu um að breiðu bökin beri byrðarnar? Svar óskast Ríkisstjórnin þarf að sýna hvað breytingarnar þýða fyrir ráðstöfunartekjur, útgjöld og skuldir ólíkra fjölskyldna. Hafi hún unnið slíkt heildarmat á hún að birta það. Hafi hún ekki gert það þarf matið að liggja fyrir áður en Alþingi afgreiðir fjárlagafrumvarpið. Það er forsenda upplýstrar umræðu að þingmenn og almenningur geti séð heildarmyndina. Án hennar er hætta á að einstakar ákvarðanir virðist viðráðanlegar þótt samanlögð áhrif þeirra séu íþyngjandi. Það nægir ekki að vita hvað aðgerðirnar skila ríkissjóði. Ríkisstjórnin verður líka að sýna hver fær reikninginn og hvort viðkomandi hafi svigrúm til að greiða hann. Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að stuðla að friði á vinnumarkaði eru skref í rétta átt, en aðeins skref. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Ólöf Isaksen Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun