„Þetta er bara víti og rautt spjald“ Smári Jökull Jónsson skrifar 4. október 2026 16:47 Jón Ólafur var ósáttur með dómgæsluna eftir leik í dag. Vísir Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV í Bestu deild kvenna var afar ósáttur með að hans lið hafi ekki fengið vítaspyrnu í tapi gegn FH í Kaplakrika í dag. Sagði hann dómarana hafa tekið margar hörmulegar ákvarðanir en hann fékk að lokum rautt spjald vegna mótmæla í 5-0 tapi Eyjakvenna.
Leikurinn í dag var fjörugur og áður en FH skoraði á 5. mínútu voru bæði lið búin að fá góð marktækifæri. FH leiddi 2-0 í hálfleik og skoraði þriðja markið síðan eftir rúmlega mínútu leik í seinni hálfleik. „Þetta breytti öllu en það sem ég tek út úr þessum leik er að ég er mjög ánægður með að mínar stúlkur héldu áfram allan leikinn að reyna að skora mörk. Sama hvort staðan var 2-0, 3-0 eða 4-0 þá héldum við alltaf áfram og það er aðdáunarvert hjá mínu liði,“ sagði Jón Óli en liðin eru hlið við hlið í töflunni í öðru og þriðja sæti Bestu deildarinnar. Á 35. mínútu leiksins þurftu Avery Vanderven varnarmaður ÍBV og Mackenzie Smith varnarmaður FH báðar að fara meiddar af velli eftir að hafa skallað saman í teig FH. Jón Ólafur er afskaplega ósáttur með að Twana Khalid Ahmed dómari leiksins hafi ekki dæmt vítaspyrnu í því atviki. „Eins og ég sé þetta héðan, þá áttum við að fá víti þegar var hendi inni í vítateig en við fengum það ekki. Svo gerist þetta atvik þar sem okkar leikmaður skallar í átt að marki FH og er síðan skölluð í andlitið. Þetta er bara víti og rautt spjald,“ sagði Jón Ólafur. „Við missum besta varnarmanninn okkar útaf fyrir vikið, þær misstu ekki sinn besta varnarmann útaf. Þetta er risaatvik. Það eru fleiri hörmuleg atvik í þessum leik og á endanum fékk ég nóg.“ Jón Ólafur fékk rautt spjald í seinni hálfleik fyrir mótmæli. „Þetta var bara verðskuldað rautt spjald, ég var bara reiður og verðskuldaði rautt spjald eftir samskipti við dómarana. Það er bara partur af þessu, maður er ekki alltaf sáttur.“ „Höldum áfram að gefa ungum leikmönnum tækifæri“ Tveir leikir eru eftir í Bestu deild kvenna en ÍBV siglir nokkuð lygnan sjó í þriðja sætinu. Framundan er landsleikjapása og framundan vinna við að halda leikmönnum við efnið. „Það verður erfitt en við gefum ungum leikmönnum áfram tækifæri til að öðlast reynslu fyrir næsta ár. Ég lofa samt að þetta verða skemmtilegir leikir,“ sagði Jón Óli en ÍBV á eftir leiki gegn Grindavík/Njarðvík og Stjörnunni. Hann segist ekki vita hver staðan er á Avery Vanderven eftir höfuðhöggið. „Ekki hugmynd, hún fór upp á spítala og eflaust er þetta einhver skurður þar sem þarf að sauma 3-4 spor. Hún lagast bara í hausnum við þetta eins og við segjum.“
Íslenski boltinn Besta deild kvenna ÍBV FH Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Aron Þórður hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira