Sport

Tapaði titlinum í lokabeygjunni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Oliver Solberg fór út af í lokabeygju tímabilsins og tapaði þar með titlinum.
Oliver Solberg fór út af í lokabeygju tímabilsins og tapaði þar með titlinum. Getty

Í fyrsta sinn í sögunni réðist heimsmeistaratitillinn í rallýi á svokölluðum ofurleiðarastigum í dag. Elfyn Evans er heimsmeistari í fyrsta sinn eftir mikla dramatík.

Elfyn Evans og Oliver Solberg kepptu um titilinn í dag en hvorugur hafði unnið heimsmeistaratitil. Reynsluboltinn Evans atti kappi við Solberg í Sardiníurallýinu í dag, sem var jafnframt lokakeppni tímabilsins í WRC-keppninni um heimsmeistartitilinn.

Lokakaflinn var dramatískur þar sem Solberg hafði það í höndum sér að fagna sigri en missti bílinn bókstaflega í lokabeygju brautarinnar. Allt stefndi í að hann myndi tryggja sér titilinn þar til það fór allt út um þúfur.

37 ára gamli reynsluboltinn Evans gerði vel í sínu og hafði sigurinn eftir mikla dramatík vegna útafkeyrslu Solbergs.

Evans er fyrsti heimsmeistarinn í sögu Wales.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×