Innlent

Bana­slys á Austur­landi og bar­átta upp á líf og dauða

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. vísir/bylgjan

Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við yfirlögregluþjón á Austurlandi um banaslysið sem varð þar í gær.

Tveir létust í fjögurra bíla árekstri sem varð rétt fyrir hádegi í gær á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri. Tveir erlendir ferðamenn voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir.

Við ræðum einnig við fjármálaráðherra sem segir það valda áhyggjum hvað virðing og traust til Alþingis Íslendinga sé lítið. Gera þurfi breytingar á þingsköpum.

Við heyrum einnig frá konu sem fæddist í Úkraínu en hefur búið hér á landi í tuttugu ár um hremmingarnar í Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. 

Hver dagur sé barátta upp á líf og dauða. Fjölskylda hennar hafi neyðst til að leggja gras og snigla úr garðinum sér til munns til að lifa af.

Þingmenn tókust á í Sprengisandi og í sportinu förum við yfir leikinn hjá karlalandsliðinu í fótbolta í gær og kynnum okkur það helsta úr Formúlu eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×