Handbolti

Eyjakonur juku á raunir HK

Sindri Sverrisson skrifar
Sandra Erlingsdóttir skoraði fimm marka ÍBV í dag.
Sandra Erlingsdóttir skoraði fimm marka ÍBV í dag. Anton Brink

Eyjakonur, sem spáð var sigri í Olís-deildinni í vetur, unnu öruggan sigur gegn HK í Kórnum í dag, 29-24. Þar með hefur HK tapað öllum fjórum leikjum sínum til þessa.

ÍBV er eftir sigurinn með sex stig en eina tap liðsins til þessa kom gegn Val á Hlíðarenda í 2. umferð.

Eyjaliðið var sex mörkum yfir í hálfleik í dag, 14-8, og komst mest tíu mörkum yfir í seinni hálfleiknum.

Ásdís Halla Hjarðar og Birna Berg Haraldsdóttir skoruðu sex mörk hvor fyrir ÍBV, Sandra Erlingsdóttir fimm og Andrea Jacobsen fjögur.

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir var markahæst hjá HK með átta mörk en Leandra Náttsól Salvamoser og Tinna Ósk Gunnarsdóttir skoruðu fjögur hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×