Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Tómas Arnar Þorláksson skrifar 3. október 2026 15:52 Lögreglu og mómælendur hafa lent saman. vísir/epa Mörg þúsund manns fylla götur og torg á Spáni í dag til að mótmæla ástandinu á húsnæðismarkaðnum þar í landi. Skipulögðu mótmælin fara fram í meira en 50 borgum en þar á meðal er Madrid, Valencia og Barcelona.
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskreppunni voru felldar á spænska þinginu í gær. „Það er mikil reiði á götum úti,“ sagði talsmaður leigjenda í Valencia-borg. Á sumum stöðum hafa mótmælendur átt í útistöðum við lögreglumenn. Ríkisstjórnin lagði fram frumvarp í því skyni að leysa húsnæðisvandann á Spáni. Padro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, mælti fyrir frumvarpinu í gær en það átti að bregðast við ákalli þjóðarinnar í kjölfar þess að 87 ára gömul kona var borin út af heimili sínu í síðasta mánuði. Leiga hennar hækkaði skyndilega og konan átti ekki efni á að standast skil á þeirri hækkun sem var talsverð. Hún hafði átt heima í íbúðinni áratugum saman. Tjaldbúðir hafa risið á aðaltorginu í Madríd.vísir/AP Mótmæli brutust út þar sem fjölmargir Spánverjar kölluðu eftir banni við útburði til 2030 og þaki á leiguverði. Sérfræðingar telja að sú staðreynd að frumvarpið hafi ekki komist í gegnum þingið gæti kallað á þingkosningar fyrr en áætlað var. Dagblaðið El País segir að samkvæmt heimildum sé Sánchez nú að íhuga að boða til kosninga. Stærstu mótmælin fara fram í Madríd. Þar hafa mótmælendur tjaldað á Puerta del Sol-torgi í nokkra daga til að vekja athygli á stöðunni. Félag leigjenda á Spáni hefur kallað eftir verkfalli hjá verkafólki til að mótmæla stöðunni.
Spánn Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira