Sport

Dag­skráin í dag: Ís­land á heima­velli og leikur meistara meistaranna

Aron Guðmundsson skrifar
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í fótbolta taka á móti Búlgörum hér heima í dag. Í kvöld mætast svo Grindavík og KR í leik meistara meistaranna í körfuboltanum
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í fótbolta taka á móti Búlgörum hér heima í dag. Í kvöld mætast svo Grindavík og KR í leik meistara meistaranna í körfuboltanum

Dagurinn verður tekinn snemma á sportrásum Sýnar í dag og stórir viðburðir á dagskrá. Meðal annars mikilvægur landsleikur á Laugardalsvelli og leikur meistara meistaranna í körfuboltanum.

Dagskráin er nú þegar hafin. Í nótt fór fram þriðja og síðasta æfing fyrir Barein kappaksturinn í Formúlu 1 sem fer nú reyndar fram í Malasíu.

Núna klukkan korter í átta hefst svo bein útsending frá tímatökum fyrir keppni morgundagsins í beinni á Sýn Sport Viaplay. 

Klukkan ellefu hefst svo bein útsending frá Alfred Dunhill Links Championship mótinu á Evrópumótaröðinni í golfi. Hægt að nálgast þá útsendingu á Sýn Sport 4. 

Þjóðadeild UEFA í fótbolta tekur svo við eftir hádegi. Á Sýn Sport Viaplay mætast Finnland og Albanía klukkan eitt.

Það er síðan klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú sem upphitun hefst á Sýn Sport fyrir leik Íslands og Búlgaríu. Leikurinn sjálfur hefst klukkan fjögur og að honum loknum tekur við uppgjör í setti með sérfræðingum stöðvarinnar. 

Króatía og England mætast svo í stórleik klukkan fjögur í beinni á Sýn Sport Viaplay og um kvöldið. Nánar tiltekið klukkan korter í sjö taka heims- og Evrópumeistarar Spánar á móti Tékklandi. 

Dagskránni lýkur svo með geggjuðum leik í Meistarakeppni KKÍ í körfubolta. Íslandsmeistara Grindavíkur taka þar á móti bikarmeisturum KR í leik meistara meistaranna. Bein útsending hefst klukkan korter yfir sjö á Sýn Sport Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×