Sport

Myndbandsdómgæsla tekin upp í Olísdeildunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úr leik FH og Hauka á dögunum í Olís-deild karla.
Úr leik FH og Hauka á dögunum í Olís-deild karla. vísir/pawel

Myndbandsdómgæsla verður nú í boði á flestum leikjum í Olísdeildum karla og kvenna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá HSÍ. Sú tækni var tekin í notkun 28. september og samhliða tóku gildi nýjar reglur HSÍ um myndbandsdómgæslu fyrir keppnistímabilið 2026–2027.

Dómaranefnd HSÍ hefur sent þjálfurum liðanna í báðum deildum reglurnar ásamt samantekt á helstu atriðum og beðið þá að fara yfir þær með leikmönnum og öðrum liðsfulltrúum.

„Myndbandsdómgæslan breytir ekki leikreglum IHF. Hún er hjálpartæki fyrir dómara sem taka áfram ákvarðanir á grundvelli eigin mats. Aðeins má grípa til hennar í þeim 11 tilvikum sem talin eru upp í 2. grein reglnanna. Þar á meðal er að skera úr um hvort mark hafi verið skorað, alvarleg atvik utan sjónlínu dómara, átök á leikvelli og atvik á síðustu 30 sekúndum leiks,“ segir í yfirlýsingu HSÍ.

Ákvörðun dómara er aðeins breytt ef upptakan gefur skýrar og ótvíræðar sannanir. Þá má ekki beita myndbandsdómgæslu eftir að boltinn hefur skipt tvisvar um lið frá atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×