Sport

Heim­spekingurinn Win­ston jós úr visku­brunni sínum

Sindri Sverrisson skrifar
Jameis Winston skemmti mönnum í nýjasta þætti Lokasóknarinnar.
Jameis Winston skemmti mönnum í nýjasta þætti Lokasóknarinnar. Getty/Al Bello

„Við erum með Plató, við erum með Sókrates og svo erum við með Jameis Winston,“ sagði Andri Ólafsson léttur í Lokasókninni á Sýn Sport þar sem menn skemmtu sér yfir viðtölum við leikstjórnanda New York Giants.

Winston og félagar fögnuðu 12-7 sigri gegn Tennessee Titans á sunnudaginn. Winston var með „heimspekilegar“ vangaveltur fyrir leik og ekki síður eftir leik þegar hann sýndi einnig stærðfræðifimi sína og benti á að 2x6 stig eru jú tólf stig og þau dugðu Giants til sigurs.

„Þetta var algjörlega geggjað,“ sagði Andri en brot úr Lokasókninni má sjá hér að neðan.

Klippa: Lokasóknin - Jameis Winston með sigur í nafninu

Andri var með þá Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson og Eirík Stefán Ásgeirsson í settinu hjá sér og þeir ræddu jafnframt um J.J. McCarthy sem kominn er til Giants.

„Ég er spenntur fyrir því. Ég held í alvöru að J.J. McCarthy hafi fullt til brunns að bera í þessari deild,“ sagði Magnús.

„Nei, nei, nei, nei. J.J. McCarthy á ekkert erindi í þessa deild,“ sagði Eiríkur áður en þeir félagar horfðu á það hvernig Cameron Ward kastaði hreinlega frá sér sigri fyrir Titans.

„Hann er lélegasti leikmaður deildarinnar. Lélegasti leikstjórnandi deildarinnar,“ sagði Magnús en Eiríkur var fljótur að svara því:

„J.J. McCarthy er verri en Cam Ward.“

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×