Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar 1. október 2026 11:31 Síðustu daga hefur nokkuð verið fjallað um að utanríkisráðuneytið greiddi fjórtán milljónir króna fyrir ráðgjöf frá einkahlutafélagi Heiðu Kristínar Helgadóttur, Nebraska ehf., vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Var umrædd þjónusta veitt á sex mánaða tímabili. Ráðuneytið hefur skýrt ráðstöfunina meðal annars með því að utanríkisráðherra hafi ekki ráðið sér annan aðstoðarmann meðan á verkefninu stóð. Utanríkisráðuneytið kynnti Heiðu Kristínu í mars sem „sérstakan ráðgjafa utanríkisráðherra“ vegna undirbúnings þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Í viðtali við DV 19. mars lýsti hún verkefninu sjálf með nokkuð víðari hætti. Hún væri „til stuðnings við þingflokkinn líka“, þótt áherslan væri einkum á ráðherrann, og samtöl í pólitík væru „partur af prógramminu“. Á kosninganótt lýsti hún síðan reynslu sinni af „kosningabaráttunni“ og sagði starfslýsingu sína enga hafa verið. Ummælin sanna ekki að samningur ráðuneytisins við Nebraska hafi verið óskilgreindur. Þau gera hins vegar eðlilegt að spurt sé hvernig sú þjónusta sem ráðuneytið keypti var afmörkuð og hvar mörkin lágu milli verkefna ráðuneytisins og pólitísks starfs í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Skilyrði fyrir lýðræðislegri umræðu Heimssýn og Evrópuhreyfingin fengu tíu milljónir króna hvort frá utanríkisráðuneytinu til að stuðla að lýðræðislegri umræðu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Þetta var raunar ákveðið og sett í ferli löngu áður en þingsályktunartillaga um hana kom fram á Alþingi 6. mars sl. Við upphaf ferlisins ákvað ráðuneytið einhliða að þessar tvær hreyfingar skyldu fá stuðninginn í stað þess að auglýsa eftir umsóknum. Viðtakendurnir voru þannig valdir áður en skilyrði stuðningsins lágu fyrir. Ráðuneytið úthlutaði fé til pólitískrar umræðu um mál sem ráðherrann hafði afdráttarlausa afstöðu til. Við úthlutun styrkja ber samkvæmt 42. gr. laga um opinber fjármál að gæta jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða. Höfundur sat þá í stjórn Heimssýnar, þar sem mikið var rætt um skilyrðin sem sett voru fyrir veitingu styrksins. Í undirrituðum samningum kemur fram að umrædd samtök eiga að skila ráðuneytinu upplýsingum um verkefni sín, framvindu þeirra og ráðstöfun fjárins. Ráðuneytið áskildi sér jafnframt rétt til að krefjast endurgreiðslu ef það teldi að markmiðum styrksins hefði ekki verið náð. Aðhald með ráðstöfun opinbers fjár er eðlilegt. En hvar átti að draga mörkin milli eftirlits með styrktu verkefni og mats á málflutningi sjálfstæðra félagasamtaka? Hvernig átti til dæmis að greina á milli ummæla stjórnarmanna í eigin nafni og afstöðu félagsins? Gátu orð þeirra í viðtali eða á samfélagsmiðlum haft áhrif á mat ráðuneytisins á því hvort tilgangi styrksins hefði verið fullnægt? Þegar slíkt mat gat leitt til endurkröfu þurftu mörkin að vera ótvíræð. Annars gat óvissan sjálf orðið til þess að fólk héldi aftur af sér. Stuðningur við lýðræðislega umræðu gat þannig skapað hvata til að takmarka hana. Hvaða aðhald gilti um ráðgjöfina? Þessi skilyrði er eðlilegt að skoða í ljósi þess að ráðuneytið keypti á sama tíma þjónustu af einkahlutafélagi til að aðstoða ráðherrann vegna sömu þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér var um þjónustukaup að ræða. Samkvæmt 27. gr. laga um opinber fjármál skal framkvæmd fjárlaga og fjárstýring vera skilvirk og hagkvæm. Hver ráðherra ber ábyrgð á og hefur virkt eftirlit með framkvæmd fjárlaga á sínu málefnasviði. Sú ábyrgð nær einnig til þjónustukaupa af einkafyrirtækjum. Einnig þarf að liggja fyrir hvar mörkin voru dregin milli verkefna ráðuneytisins og pólitískrar kosningabaráttu. Í 4. tölul. 5. gr. siðareglna ráðherra er gerð krafa um skýran greinarmun á flokkspólitísku starfi, svo sem í tengslum við kosningar, og verkefnum ráðuneytis. Þar er aðstoðarmaður undanþeginn banni við að fela starfsfólki ráðuneyta flokkspólitísk verkefni. Í 2. tölul. 3. gr. er jafnframt kveðið á um að notkun opinberra fjármuna eða gæða starfsins í persónulegum eða pólitískum tilgangi sé bundin við það sem lög og reglur leyfa. Siðareglur ráðherra Skýring ráðuneytisins um að ráðgjöfin hafi komið í stað annars aðstoðarmanns svarar ekki ein og sér spurningunni um stöðu ráðgjafans. Var Heiða Kristín aðstoðarmaður ráðherra í skilningi 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands eða veitti Nebraska ehf. ráðuneytinu þjónustu sem sjálfstæður verktaki? Ef um verktakasamning var að ræða, hvaða lagalegu þýðingu hafði þá að þjónustan hefði komið í stað annars aðstoðarmanns? Getur ráðuneytið sýnt fram á hvað var keypt, á hvaða grundvelli, hvernig þjónustan var afmörkuð og hvernig fylgst var með framkvæmd samningsins? Hver gaf fyrirmæli um vinnuna og hvernig var staðfest að umsamin þjónusta hefði verið veitt? Gögn og samskipti um framkvæmd samningsins ættu að geta varpað ljósi á þetta. Skráningarskylda Stjórnarráðsins nær ekki aðeins til formlegra skjala. Einnig ber að skrá óformleg samskipti við utanaðkomandi aðila þegar þar koma fram mikilvægar upplýsingar um mál ráðuneytisins sem ekki eru skráðar annars staðar. Því er eðlilegt að ráðuneytið leggi fram samninginn, reikningana og gögn um fyrirmæli, framkvæmd og afrakstur vinnunnar. Í ljósi umræðunnar er ástæða til að birta þessi gögn að fyrra bragði. Laut þjónustan að verkefnum ráðuneytisins vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar eða fólst einhver hluti hennar í baráttu fyrir tiltekinni niðurstöðu? Ef greitt var fyrir slíka baráttu þarf að skýra á hvaða lagalega grundvelli það var gert. Þarna birtist grundvallarvandinn við ferlið. Ráðuneytið setti sjálfstæðum þátttakendum umræðunnar skilyrði og áskildi sér endurkröfurétt, en fjármagnaði jafnframt ráðgjöf við ráðherrann vegna sama máls. Hvaða kröfur voru gerðar um framkvæmd ráðgjafarinnar og hvernig var henni fylgt eftir? Styrkveitingar og þjónustukaup eru ólík lögfræðileg fyrirbæri. Í báðum tilvikum þarf þó að vera hægt að gera grein fyrir ráðstöfun skattfjár. Ríkar skýrslukröfur gagnvart félagasamtökum gera kröfuna um upplýsingar um eigin kaup ráðuneytisins enn skýrari. Skattfé er einnota. Ráðuneyti sem áskilur sér rétt til að endurkrefja aðra um það verður sjálft að geta sýnt fram á hvað almenningur fékk fyrir greiðslurnar. Höfundur er hagfræðingur og með diploma í opinberri stjórnsýslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun