Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar 1. október 2026 08:45 Árið 2026 hefur verið erfitt fyrir íslenskt efnahagslíf, en árið hófst með ríflegum skattahækkunum sem tóku gildi 1. janúar. Ekki bætti úr skák þegar ríkisstjórnin lögfesti tengingu bóta við launavísitölu, Seðlabankinn var í það minnsta ekki ánægður með það og benti m.a. á að áformin gætu falið í sér aukin verðbólguþrýsting og að bætur gætu hækkað umfram laun. Í kjölfarið gerðist það sem hefði ekki átt að koma neinum á óvart. Verðbólga jókst og stýrivextir verið hækkaðir í þrígang. Erfitt er að kenna öðrum en ríkisstjórninni um það ástand sem upp er komið, þó vissulega hafi staða heimsmála einnig verið óhagstæð eins og svo oft áður, en t.a.m. hefur Seðlabankinn lýst því yfir að gjaldahækkanir hins opinbera séu stærsti orsakavaldur þeirrar aukningar á verðbólgu sem átt hefur sér stað seinasta árið. Raunveruleikin og draumarnir Þessar hrakfarir hafa þó ekki dregið úr ánægju ríkisstjórnarinnar með eigin störf. Þegar fjármálaráðherra kynnti með stolti fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027, hvar gert er ráð fyrir fimm milljarða afgangi ríkissjóðs á næsta ári, kallaði hann á Valkyrjurnar þrjár upp á svið þar sem skælbrosandi forsætisráðherra teiknaði núll á tússtöflu sem tákna átti hallalaus fjárlög. Í kjölfarið hafa ráðherrarnir og stjórnarliðar hver á fætur öðrum og fagnað fjárlögunum sem stórkostlegum árangri og því að ríkisstjórnin hafi „loksins stöðvað hallarekstur ríkissjóðs“. Virðast þau horfa algjörlega fram hjá því að áætlaður halli er ekkert annað en áætlun um að allt falli í ljúfa löð á næsta ári. Í þessu tilviki er þó réttara að tala um draumóra en áætlun, a.m.k. ef litið er til þess að áætlaður halli í seinustu fjárlögum var um 28 milljarðar en afkomuhorfur benda nú til þess að hallinn verði þegar upp er staðið tæpum 40 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir. Reynist fjárlögin 2027 jafn sannspá og þau voru 2026 mun ríkissjóður enda í 35 milljarða halla. Ólíklegt er að forsætisráðherra muni hafa fyrir því að teikna þá tölu fyrir okkur. Þyngdartapinu fagnað í janúar Algengt er að landsmenn strengi sér metnaðarfull áramótaheit um verulegt þyngdartap með tilheyrandi heilbrigðari lífstíl. Þrátt fyrir að líkamsræktarstöðvar séu þétt setnar í janúar ár hvert kvarnast þó verulega úr hópnum eftir því sem á líður og fæstir enda léttari í desember, heldur frekar enn sverari en þeir voru árinu áður. Þess vegna dettur engum í hug að monta sig yfir þyngdartapinu í byrjun janúar, enn þá með afganginn af jólatertunni í munnvikinu og án þess að hafa stigið fæti í ræktina. Það gerir ríkisstjórnin hins vegar með fagnaðarlátum sínum yfir planinu um hallalaus fjárlög. Þau hafa strengt álíka heit áður, hvort sem það er tengt halla í fjárlögum, um að hækka ekki skatta eða að slá niður vexti og verðbólgu. Aldrei hafa þau þó staðið við loforðin. Því kemur spánskt fyrir sjónir að sjá öll þessi fagnaðarlæti þegar árangurinn er enginn, enn sem komið er. Staðan kallar ekki á fögnuð, heldur u-beygju Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi boðað mikinn fögnuð eru aðstæður með engu móti þannig að tilefni sé til sérstakrar gleði. Almenningur hefur á þessu ári þurft að þola aukna verðbólgu, þrjár vaxtahækkanir, aukið atvinnuleysi og hinar ýmsu skattahækkanir. Nú á að bæta um betur og hækka tekjuskatt einstaklinga, skatta á bifreiðaeigendur og skatta á heimili fólks með forvarnargjaldi eins og boðað er í fjárlagafrumvarpinu. Og þá eru ótaldar óbeinar skattahækkanir á almenning líkt og hækkun virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað, sem leiðir af sér hækkun á fasteignaverði, og bankaskatt, sem er fyrirséð er að muni á endanum lenda á viðskiptavinum bankanna. Það er líkt og ríkisstjórnin hafi engan skilning á áhrifum gjörða sinnar á landsmenn alla og velti því ekkert fyrir sér hvaða afleiðingar skattahækkanir þeirra hafa á heimilisbókhald landsmanna. Eina sem virðist komast að er að leggja fram plan. Það hefur því miður verið saga þessarar ríkisstjórnar þegar kemur að efnahagsmálum. Áætlunum, loforðum og plönum er fagnað en aldrei árangrinum, enda er hann ekki til staðar. Höfundur er lögfræðingur og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun