Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta BL og Ragnheiður Tryggvadóttir 12. október 2026 09:19 iX3 er hátæknilegur bíll og fyrsti bíll BMW sem byggir á nýjum rafbílagrunni, Neue Klasse. Hann er sagður marka nýtt upphaf en halda þó tryggð við kjarna BMW. Hvernig skilar þessi tæknibomba sér undir stýri? BMW iX3 er mættur með látum til landsins, stór, fjórhjóladrifinn rafjeppi með allt að 805 kílómetra drægni og eldsnögga hleðslu. Þetta er fyrsti bíll Neue Klasse-kynslóðarinnar frá BMW og verðlaunum rignir yfir hann, meðal annars bíll ársins og rafbíll ársins, verðlaun fyrir hönnun og ég veit ekki hvað og hvað.
Yfir hundrað bílar eru þegar seldir en Ísland var eitt þeirra markaðssvæða BMW sem fengu hann fyrst í sölu. Ísland er nefnilega enginn jaðarmarkaður í augum BMW. Þvert á móti. Þegar Paul de Courtois, framkvæmdastjóri BMW Group, kom í heimsókn í vor og kynnti nýja iX3 með stæl í Hörpu sagði hann okkur Íslendinga þá þjóð sem komin væri hvað lengst í rafbílavæðingu í heiminum. Hrein og nánast ótakmörkuð orka og sérstakar markaðsaðstæður landsins sem eyju hefðu mikið að segja í augum eins stærsta bílaframleiðanda heims, en ekki síst hversu opin við erum fyrir nýrri tækni og fljót að tileinka okkur hana. iX3 er hátæknilegur bíll og fyrsti bíll BMW sem byggir á nýjum rafbílagrunni, Neue Klasse. Hann er sagður marka nýtt upphaf en halda þó tryggð við kjarna BMW. Hvernig skilar þessi tæknibomba sér undir stýri? Skapa sömu BMW-tilfinningu með öðrum verkfærum Sjálf keyri ég reyndar BMW, tíu ára gamlan, lítinn afturhjóladrifinn 1 Series sem vegur 1.375 kíló og liggur þétt við malbikið. Mér finnst hann skvísulegur og alveg svakalega gott að keyra hann. Nýi iX3 er aftur á móti töluvert fullorðinslegri, stór og stæðilegur. Ég fékk að prófa iX3 50 og á pappírunum eiga hann og litli og létti afturhjóladrifni dísilbíllinn minn fátt sameiginlegt. iX3 er stór fjórhjóladrifinn rafbíll, næstum heilu tonni þyngri en minn, eða 2.360 kíló, með 469 hestöfl, 645 Nm tog og 179 mm veghæð og getur dregið á eftir sér tvö tonn, hvorki meira né minna. En þó ólíkir séu fannst mér ég samt þekkja mig þegar ég rúllaði af stað. Það er nefnilega ákveðin aksturstilfinning sem BMW-eigendur þekkja. Bíllinn situr einhvern veginn rétt á veginum, stýrið er nákvæmt og viðbrögðin fyrirsjáanleg. Bíllinn gerir einfaldlega það sem maður biður hann um. Mjúk þyngd en ekki þyngsli iX3 er miklu stærri og þyngri bíll en bíllinn minn en mér fannst hann merkilega lipur miðað við stærð. Ég keyrði hann bæði innanbæjar, renndi út á þjóðveginn og aðeins út á malarvegi. Hann er mjúkur og stöðugur, fylgir nákvæmlega því sem ökumaðurinn gerir og í honum er einhver mjúk þyngd án þess að hann virki þunglamalegur. Mér fannst ég sérstaklega finna þessa þungu mýkt þegar ég bremsaði og í beygjum, enda var hann virkilega meðfærilegur innanbæjar. Það sem skilar þessari nákvæmu BMW-aksturstilfinningu í mínum gamla er meðal annars afturhjóladrifið og lági þyngdarpunkturinn en í iX3 er hún framkölluð með ofurtölvu og nýju miðlægu stjórnkerfi sem BMW kallar Heart of Joy. Kerfið samhæfir drif, hemlun, orkuendurheimt og akstursstýringu til að fá þennan stóra og þunga rafbíl til að bregðast hratt og eðlilega við því sem ökumaðurinn gerir. 805 kílómetrar og eldsnögg hleðsla iX3 50 Series er með 108,7 kWh rafhlöðu og allt að 805 km WLTP-drægni. Hann getur tekið við allt að 400 kW DC-hleðslu og við kjöraðstæður segir BMW hægt að bæta allt að 372 kílómetrum við drægnina á tíu mínútum. Hleðsla úr 10 upp í 80 prósent tekur um 21 mínútu. Þetta eru tölur sem bragð er að og þegar við bætum við fjórhjóladrifinu, 2.000 kg dráttargetu og þægilegum akstri erum við komin með bíl sem tikkar í flest, ef ekki öll, box íslenskra ökumanna. Akstursaðstoðin er mjög skilvirk og ég lét hann til dæmis leggja fyrir mig í stæði meðan ég sat og gerði ekki neitt. Það er meira að segja hægt að fara út úr bílnum og láta hann leggja mannlausan gegnum app. Svo er líka hægt að taka upp meðan maður leggur bílnum og vista, til dæmis ef innkeyrslan heima er þröng og leiðinleg, og láta bílinn bara sjá um að leggja sjálfan í hvert sinn sem maður kemur heim. Fór BMW á smá hönnunarflipp? Ein þeirra verðlauna sem iX3 hefur hlotið eru Best Interior Design and Infotainment í German Car of the Year 2027-verðlaununum. Fyrst fannst mér reyndar að hönnuðirnir hefðu farið á full mikið flug. Þríhyrningar, horn og skálínur eru um allt; í mælaborðinu, skjánum, tökkum, gluggum og hurðunum og meira að segja stýrinu. En eftir því sem leið á aksturinn tók ég rýmið í algjöra sátt. Ástæðan er að samræmið er algjört. Línurnar kallast á milli ólíkra hluta innréttingarinnar og verða að einni heild. Ég var farin að kunna virkilega vel við mig í bílnum. Ég er sérstaklega hrifin af BMW Panoramic Vision. Upplýsingar birtast semsagt í langri rönd neðst við framrúðuna og því vel í augnlínu ökumanns. Hægt er að velja hvaða upplýsingar birtast þar og mér fannst þær bæði mjög skýrar og auðlesnar. Um leið setur röndin sterkan svip á allt rýmið. Stóri miðjuskjárinn er sömuleiðis skýr og grafíkin falleg. Og svo er það stýrið. Það fer mjög vel í hendi og þríhyrningslaga hornin sitja akkúrat þar sem þumalfingurnir vilja hvíla. Óvænt aukadekk í skottinu Farangursrýmið er 520 lítrar. Hægt er að fella aftursætin niður þegar flytja þarf meira og svo er líka 58 lítra geymslurými undir húddinu að framan. Það sem kom mér hins vegar mest á óvart þegar ég opnaði afturhlerann var ekki stærð farangursrýmisins heldur það sem lá á gólfinu: varadekk! Það er orðið óvenjuleg sjón í nútímabílum en á hinn bóginn traustvekjandi að sjá alvöru varadekk þegar hugsað er til íslenskra malarvega. Láttu mig þekkja þá. Rafbíll fyrir íslenska markaðinn Paul de Courtois sagði íslenska markaðinn langt kominn í rafbílavæðingu. Það þarf ekki lengur að sannfæra okkur um að rafbílar virki, við erum komin lengra en það og farin að gera kröfur. Bíllinn þarf að komast langt, virka allan ársins hring í frosti og snjó, rigningu og roki og helst þarf að vera hægt að hlaða hann í einum grænum. iX3 mætir þessum kröfum. Hann er fjórhjóladrifinn, langdrægur, hraðhleðinn, rúmgóður og afar þægilegur. Hann er lipur og frábær borgarbíll en líka þægilegur ferðabíll á þjóðveginum. Hann er vissulega órafjarri gamla 1 Series-bílnum mínum, en undir stýri leynir skyldleikinn sér ekki.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Atvinnulíf Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Neytendur Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Viðskipti erlent Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Ekki hægt að leiðast í vinnunni Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki