Sport

Björk segir öllum þjálfurum upp

Sindri Sverrisson skrifar
Frá vorsýningu Bjarkar í ár.
Frá vorsýningu Bjarkar í ár. @fimleikafelagidbjork

Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði neyddist í gærkvöld til þess að tilkynna öllum þjálfurum sínum, 18 ára og eldri, um uppsögn sem tekur gildi um áramótin.

Þetta kemur fram í bréfi sem sent var á foreldra og forráðamenn þeirra um það bil 1.100 iðkenda sem æfa fimleika hjá Björk.

Þar segir að uppsagnirnar séu tilkomnar vegna fjárhagserfiðleika og tengist frammistöðu þjálfaranna ekki á nokkurn hátt.

Félagið sé nú í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um rekstrar- og þjónustusamning sem vonir standa til að skili lausn svo starf félagsins geti haldið áfram með sama hætti og áður.

Ráðningarsamningar þjálfaranna gilda næstu þrjá mánuði og munu æfingar að óbreyttu halda áfram samkvæmt stundatöflu þessa önn.

Bréfið frá Björk má sjá hér að neðan.

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Fimleikafélagið Björk hefur á undanförnum mánuðum unnið að endurskipulagningu rekstrar félagsins.

Félagið er í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um rekstrar- og þjónustusamning og vinnur að lausn í samstarfi við bæinn. Á sama tíma þurfti að aðlaga reksturinn að núverandi forsendum.

Því var í kvöld tilkynnt um uppsögn á ráðningarsamningum allra þjálfara félagsins 18 ára og eldri. Núverandi ráðningarsamningar gilda til og með 31. desember 2026. Þetta er rekstrarleg ákvörðun og tengist ekki frammistöðu þjálfaranna.

Æfingar halda áfram samkvæmt stundatöflu. Vilji félagsins og markmið þessara aðgerða er að starf allra deilda og hópa haldist óbreytt. Unnið verður að fremsta megni að lágmarka rask og tryggja samfellu fyrir iðkendur.

Frekari upplýsingar verða sendar hér í Abler eftir því sem málin skýrast. Ef breytingar varða hóp barnins ykkar verður haft samband sérstaklega. Spurningum má beina til skrifstofu félagsins.

Með kveðju,

Aðalstjórn Fimleikafélagsins Björk




Fleiri fréttir

Sjá meira


×