Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir og Valdimar Víðisson skrifa 29. september 2026 08:01 Í Staðarbergi 6 í Hafnarfirði er Lækur, athvarf fyrir fólk sem glímir meðal annars við geðrænar áskoranir, félagslega einangrun og skerta virkni. Einangrun getur haft alvarleg áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu og oft aukið geðrænar áskoranir. Eitt af mikilvægustu hlutverkum Lækjar er að rjúfa þessa einangrun með því að skapa öruggan og heimilislegan vettvang þar sem fólk getur komið á eigin forsendum, átt samskipti við aðra, tekið þátt í fjölbreyttri starfsemi og einfaldlega verið hluti af samfélagi. Með reglulegum samskiptum, stuðningi jafningja og þátttöku í daglegu lífi eykst oft sjálfstraust, virkni og lífsgæði þeirra sem sækja starfsemina. Það kann að hljóma einfalt. Að hafa stað til að fara á, að hitta annað fólk, að setjast niður yfir mat eða kaffibolla, að spjalla, spila, skapa eða bara vera innan um aðra. En fyrir einstakling sem hefur dregið sig í hlé frá samfélaginu eða glímir geðrænar áskoranir getur þetta skipt gríðarlega miklu máli. Lækur hefur starfað um árabil en Hafnarfjarðarbær tók alfarið við rekstrinum árið 2018. Haustið 2020 flutti starfsemin í núverandi húsnæði að Staðarbergi 6. Flutningurinn skipti miklu máli. Húsnæðið er stærra, hentugra og aðgengilegra og hefur starfsemin eflst eftir flutninga. Þegar föstudagurinn verður langur Á síðasta fundi fjölskylduráðs þann 15. september. sl. lagði fulltrúi Framsóknar fram tillögu um að hefja reglulega helgaropnun Lækjar. Tillagan gerir ráð fyrir að opið verði um helgar frá kl. 10:30 til 14:30. Fjölskylduráð samþykkti að vísa tillögunni í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2027. Þar munum við í Framsókn fylgja tillögunni eftir og við bindum vonir við það að hún verði samþykkt. Geðrænar áskoranir taka sér ekki frí þegar vinnuvikunni lýkur síðdegis á föstudegi. Þörfin fyrir mannleg samskipti, öryggi, rútínu og stað til að leita á hverfur ekki um helgar. Fyrir marga eru helgarnar kærkomið frí frá annríki vikunnar. Tími með fjölskyldu og vinum, matarboð, íþróttir, afmæli eða notaleg stund heima. En þannig eru helgarnar ekki fyrir alla. Fyrir einstakling sem býr einn, hefur takmarkað félagslegt tengslanet og litla daglega virkni geta helgarnar verið erfiðar. Þegar önnur þjónusta minnkar, hefðbundin dagskrá stöðvast og rútínan rofnar verður einmannaleiki og einangrun oft meira áberandi. Klukkustundirnar verða lengri og dagarnir þyngri. Það er einmitt við þessar aðstæður sem starfsemi eins og Lækur getur skipt sköpum. Með því að bjóða upp á öruggan samverustað, félagsleg samskipti og innihaldsríka dagskrá stuðlar starfsemin að aukinni virkni, bættri líðan og dregur úr félagslegri einangrun þeirra sem mest þurfa á henni að halda. Stundum er stærsta skref dagsins að fara út úr húsi Við tölum gjarnan um virkni eins og hún þurfi alltaf að vera stór og sýnileg. Að fara í vinnu, líkamsrækt, nám eða skipulagða dagskrá. En fyrir fólk sem glímir við félagslega einangrun eða geðrænan vanda getur árangur dagsins verið allt annars eðlis. Stundum er sigurinn einfaldlega sá að fara á fætur og klæða sig. Opna útidyrnar og fara út úr húsi og inn á stað þar sem tekið er vel á móti manni án þess að maður þurfi að útskýra sig sérstaklega. Það er ein af sérstöðum Lækjar. Fólk getur komið á eigin forsendum án sérstakrar skráningar og án þess að boða komu sína. Þar má taka þátt eftir eigin getu. Fyrir suma þýðir það að vera virkir þátttakendur í dagskránni. Fyrir aðra getur verið nóg að sitja með öðrum í smástund og finna að þeir tilheyra. Einmitt þar liggur eitt mikilvægasta hlutverk Lækjar. Með því að bjóða upp á aðgengilegan, öruggan og fordómalausan vettvang hjálpar starfsemin fólki að rjúfa félagslega einangrun, mynda tengsl og byggja upp tilfinningu fyrir samfélagi og tilheyra. Fyrir marga er það að mæta reglulega í Læk fyrsta skrefið í átt að aukinni virkni, bættri líðan og sterkari þátttöku í samfélaginu. Að jafnaði sækir fjöldi fólks Læk á hverjum degi. Fyrir suma er Lækur ein helsta reglulega virkni dagsins og jafnvel einn mikilvægasti félagslegi þáttur hvers dags. Þess vegna skiptir máli að horfa ekki eingöngu á þjónustuna út frá hefðbundnum opnunartíma heldur út frá lífi fólksins sem þurfa á þjónustunni að halda. Að grípa fyrr inn í Helgaropnun snýst ekki eingöngu um að bæta við opnunartímum. Hún snýst um samfellu, forvarnir og að grípa fólk áður en vandinn verður meiri. Langvarandi einangrun getur haft mikil áhrif á líðan fólks. Þegar einstaklingur missir tengsl, rútínu og virkni geta vandamálin vaxið og síðar kallað á meiri og umfangsmeiri þjónustu. Við eigum því ekki alltaf að horfa á félagslega þjónustu eingöngu sem kostnað. Við þurfum líka að spyrja hvað gerist ef þjónustan er ekki til staðar. Lækur byggir á einfaldri en mikilvægri hugmynd. Að skapa stað þar sem fólk finnur öryggi, félagsskap, virkni og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Um leið gegnir starfsemin mikilvægu hlutverki í að rjúfa félagslega einangrun og styrkja félagsleg tengsl þeirra sem annars gætu staðið utan samfélagsins. Það skiptir máli alla daga vikunnar. Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí. Samfélagið okkar á þess vegna að vera tilbúið að mæta fólki, líka um helgar. Jóhanna er fulltrúi Framsóknar í fjölskylduráði og Valdimar er bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun