Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar 28. september 2026 14:30 Ég fagna því að norska ríkisstjórnin ætlar ekki lengur að bíða þar til ákvarðanir ESB eru fullmótaðar áður en hún lætur til sín taka. Hún vill verja norska hagsmuni fyrr, forgangsraða EES-málum af meiri festu og samhæfa stjórnsýsluna betur. Að mínu mati er þetta einmitt sú stefnubreyting sem Ísland þarf að taka sér til fyrirmyndar. Ég veit að núverandi ríkisstjórn vill feta í fótspor Noregs og styrkja hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB. Það er mikilvægt skref, en vinnan má ekki dragast. Ég hvet ríkisstjórnina til að marka skýra pólitíska forgangsröðun og tryggja að íslensk stjórnsýsla beiti sér áður en evrópsk löggjöf er fullmótuð – ekki eftir að ákvarðanir hafa verið teknar. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst gerir þetta enn brýnna. Þótt tæpur meirihluti hafi hafnað því að taka upp aðildarviðræður að nýju – og ég hefði kosið aðra niðurstöðu – leysir það okkur ekki undan því að gæta hagsmuna Íslands í Evrópu. Þvert á móti. EES-samningurinn er mikilvægur fyrir bæði Ísland og Noreg. Hann tryggir okkur aðgang að innri markaðnum, en veitir okkur ekki sömu aðkomu að mótun laga og reglna og full aðild að Evrópusambandinu myndi gera. Aðildarríki ESB eru ekki alltaf sammála, en þau vinna engu að síður saman að fjölmörgum sameiginlegum málum og hafa beina aðkomu að ákvörðunum. Ísland og Noregur geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri og tekið þátt í undirbúningi EES-gerða, en hafa ekki atkvæðisrétt í stofnunum ESB þegar löggjöfin er mótuð og samþykkt. Öflug hagsmunagæsla innan EES getur aukið áhrif okkar, en hún kemur aldrei að fullu í stað þess að eiga sæti við borðið. Minn draumur er að Ísland og Noregur eigi beina aðkomu að þeim ákvörðunum sem móta samfélög okkar og efnahag. Þess vegna tel ég langtímahagsmunum beggja landa best borgið með fullri aðild að Evrópusambandinu. Þar til nægur pólitískur stuðningur fæst til þess megum við hins vegar ekki láta reka á reiðanum. Noregur hefur sýnt hvað þarf að gera. Nú þurfa íslensk stjórnvöld að fylgja því fordæmi – og þau þurfa að gera það hratt. Heimildir: Norska ríkisstjórnin: Regjeringen tar grep – fornyer og styrker EØS-arbeidet; RÚV: Þjóðin hafnar aðildarviðræðum við ESB. Höfundur er verkefnastjóri fjármála og rekstrar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Ég fagna því að norska ríkisstjórnin ætlar ekki lengur að bíða þar til ákvarðanir ESB eru fullmótaðar áður en hún lætur til sín taka. Hún vill verja norska hagsmuni fyrr, forgangsraða EES-málum af meiri festu og samhæfa stjórnsýsluna betur. Að mínu mati er þetta einmitt sú stefnubreyting sem Ísland þarf að taka sér til fyrirmyndar. Ég veit að núverandi ríkisstjórn vill feta í fótspor Noregs og styrkja hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB. Það er mikilvægt skref, en vinnan má ekki dragast. Ég hvet ríkisstjórnina til að marka skýra pólitíska forgangsröðun og tryggja að íslensk stjórnsýsla beiti sér áður en evrópsk löggjöf er fullmótuð – ekki eftir að ákvarðanir hafa verið teknar. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst gerir þetta enn brýnna. Þótt tæpur meirihluti hafi hafnað því að taka upp aðildarviðræður að nýju – og ég hefði kosið aðra niðurstöðu – leysir það okkur ekki undan því að gæta hagsmuna Íslands í Evrópu. Þvert á móti. EES-samningurinn er mikilvægur fyrir bæði Ísland og Noreg. Hann tryggir okkur aðgang að innri markaðnum, en veitir okkur ekki sömu aðkomu að mótun laga og reglna og full aðild að Evrópusambandinu myndi gera. Aðildarríki ESB eru ekki alltaf sammála, en þau vinna engu að síður saman að fjölmörgum sameiginlegum málum og hafa beina aðkomu að ákvörðunum. Ísland og Noregur geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri og tekið þátt í undirbúningi EES-gerða, en hafa ekki atkvæðisrétt í stofnunum ESB þegar löggjöfin er mótuð og samþykkt. Öflug hagsmunagæsla innan EES getur aukið áhrif okkar, en hún kemur aldrei að fullu í stað þess að eiga sæti við borðið. Minn draumur er að Ísland og Noregur eigi beina aðkomu að þeim ákvörðunum sem móta samfélög okkar og efnahag. Þess vegna tel ég langtímahagsmunum beggja landa best borgið með fullri aðild að Evrópusambandinu. Þar til nægur pólitískur stuðningur fæst til þess megum við hins vegar ekki láta reka á reiðanum. Noregur hefur sýnt hvað þarf að gera. Nú þurfa íslensk stjórnvöld að fylgja því fordæmi – og þau þurfa að gera það hratt. Heimildir: Norska ríkisstjórnin: Regjeringen tar grep – fornyer og styrker EØS-arbeidet; RÚV: Þjóðin hafnar aðildarviðræðum við ESB. Höfundur er verkefnastjóri fjármála og rekstrar.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun