Golf

Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir framúrköll

Andri Broddason skrifar
Scottie Scheffler er mikill keppnismaður en heiðurinn er aldrei langt undan.
Scottie Scheffler er mikill keppnismaður en heiðurinn er aldrei langt undan. Jacob King/PA Images via Getty Images

Mikill hiti getur myndast í keppni þegar Bandaríkin keppa á móti öðrum löndum. Lokadagur Forsetabikarsins er í dag þar sem spilað er í Chicago og voru stuðningsmenn Bandaríkjanna til vandræða.

Á lokadegi Forsetabikarsins fara allir kylfingar liðanna í holukeppni við mótherja og er reynt að raða í ráshópa til að vinna sem flesta sigra. Scottie Scheffler, sem er efstur á heimslistanum, mætti Kólumbíumanninum Nico Echavarria í dag en leiðinlegt atvik gerðist á fjórtándu holu.

Þegar Echavarria var að slá upphafshöggið sitt kallaði bandarískur stuðningsmaður: „Áfram Scottie“ í miðri aftursveiflu hjá Echavarria. Það sló hann út af laginu og fór upphafshöggið af brautinni og endaði Kólumbíumaðurinn í erfiðri stöðu.

Scottie Scheffler var ekki ánægður með stuðningsmanninn og gekk rakleiðis til hans og skammaði hann. Scheffler endaði á að ná pari á holunni en Echavarria þurfti að setja boltann ofan í holuna af rúmlega ellefu metrum til þess að fella holuna.

Scheffler ákvað að vera herramaður og gaf honum púttið og endaði holan á því að falla. Margir líta upp til ákvörðunar Schefflers þar sem hann vill frekar vinna á jöfnum grundvelli frekar en að nýta öll tækifæri sem gefast. Heiðarleikinn er það sem skiptir máli.

Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×