Sport

Andrea í sér­flokki í Frakk­landi og vann frá­bæran sigur

Aron Guðmundsson skrifar
Yfirburðir Andreu í Frakklandi í gær voru algjörir.
Yfirburðir Andreu í Frakklandi í gær voru algjörir. Vísir/Sigurjón

Hlaupadrottningin Andrea Kolbeinsdóttir vann yfirburðarsigur í 50 kílómetra utanvegahlaupi á UTMB mótaröðinni sem fram fór í Frakklandi í gær. 

Segja má að Andrea hafi verið í sérflokki í hlaupinu sem hófst í þorpinu Eze á frönsku rívíerunni og lauk í Nice en um 50 kílómetra hlaup með yfir 2000 metra hækkun var að ræða. 

Andrea kom í mark á tímanum 4 klukkustundir: 43 mínútur og 31 sekúnda og var tæpum 32 mínútum á undan næsta hlaupara í mark sem var hin spænska Julia Font Gomez. 

Frábær árangur hjá Andreu sem tók fyrsta sætið og það örugglega.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×