Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar 27. september 2026 09:02 Enn á ný eru átök innan SÁÁ og eru komin á það stig að þau bitna á starfsemi Vogs. Stjórn og faglegum stjórnendum greinir á, reynslumikið fólk hefur sagt upp og læknaskortur hefur leitt til verulegrar fækkunar á innlögnum. Þetta er þreytt og gömul saga. Fólk sem þarf virkilega á meðferð að halda á ekki að þurfa að bíða eftir því að enn ein valdabarátta innan samtakanna leysist. Þórarinn Tyrfingsson er kominn aftur til starfa á Vogi. Ég verð að segja að mér er verulega brugðið og velti fyrir mér hvort það sé árið sé 1995, nei gott fólk það er komið árið 2026. Það er sláandi að samtök sem reka sjúkrahús skuli þurfa að kalla aftur til fyrrverandi yfirlækni og formann þegar vöntun er á læknum. Þórarinn hefur nú þegar skilað af sér löngu starfi fyrir SSÁ og er endurkoma hans er greinilegt merki um hversu starfsemin sé orðin súr og þetta getur ekki verið framtíðaráætlun sjúkrahússins. Mín skoðun er sú að yfirlæknir á Vogi eigi að hafa sterkan bakgrunn í lyflækningum ásamt sérþekkingu á fíknsjúkdómum. Starfsemin á Vogi miðast við af-eitrun þeirra sem þessarar þjónustu þarfnast. Fólk kemur í innlögn undir áhrifum eða í fráhvörfum. Þar eru sjúkrarúm fyrir veikustu einstaklingana til að bregðast við þeim líkamlegum fylgikvillum sem geta verið lífshættulegir. Alvarleg áfengisfráhvörf geta valdið krömpum og óráði. Að mínu mati á sú læknisfræðilega ábyrgð að vega þungt þegar valinn er sá sem leiðir sjúkrahúsið. Fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, er bæði lyflæknir og sérfræðingur í fíknlækningum. Nú hefur geðlæknir tekið við því starfi. Ég er ekki að halda því fram að geðlæknar geti ekki sinnt fólki með fíknsjúkdóm. Geðræn veikindi og fíkn fara oft saman og er sú þekking nauðsynleg. Afstaða mín er sú að þegar leiða á sjúkrahús sem sinnir af-eitrunum og bráðum líkamlegum veikindum, eigi lyflæknisfræðileg reynsla og sérhæfing í fíknlækningum að vera sérstaklega sterk í forystunni. Sú ákvörðun þarf að byggjast á verkefnum Vogs og hæfni viðkomandi læknis, ekki á því að hægt hafi verið að fylla lausa stöðu. Fróðlegt væri að heyra vísindamann eins og Kára Stefánsson útskýra fyrir mér og öðrum hvað rannsóknir segja um líffræðilega þætti fíknar. Sú umræða gæti hjálpað til við að skilgreina sjúkdóminn fíkn, hvort um sé að ræða eingöngu geðrænan eða líkamlegan sjúkdóm. Þótt að á Vogi verður að sinna hvoru tveggja. Það leysir þó stjórn SÁÁ ekki undan ábyrgð á því að tryggja stöðugt, fullmannað læknateymi. Ágreiningur milli stjórnar SÁÁ og faglegra stjórnenda er ekki ný saga. Árið 2020 urðu harðar deilur um forystu samtakanna og Vogs. Nú hafa starfsmenn og fráfarandi stjórnendur undirritað vantraust á stjórn SÁÁ vegna afskipta af faglegu starfi. Formaður stjórnar hafnar afskiptum, og tugir starfsmanna hafa ekki getað mætt til vinnu vegna álags og veikinda.. Þegar sömu átök birtast aftur á nokkra ára fresti er ekki nóg að skipta um fólk í brúnni. Það þarf að skýra í verki hvar vald stjórnar félagsins endar og sjálfstæð fagleg ábyrgð sjúkrahússins tekur við. Nýr heildarsamningur SÁÁ við Sjúkratryggingar var gerður í desember síðastliðinn. Nú á að endurskoða hann með áherslu á stjórnarhætti og fagleg gæði. Sú endurskoðun verður að tryggja örugga og skýra læknisfræðilega ábyrgð og raunverulegt faglegt sjálfstæði meðferðarinnar. Jafnframt hvet ég heilbrigðisráðherra Ölmu Möller að skoða hvernig fleiri hæfir aðilar geti veitt sambærilega fíkni-meðferð með opinberri greiðsluþátttöku. Lífsnauðsynleg þjónusta má ekki verða svo háð innri stöðu eins félags að sjúklingar missi aðgang að henni þegar gömul saga félagasamtaka SÁÁ endurtekur sig á nokkra ára fresti. Ég dáist að því sem SÁÁ hefur byggt upp. Einmitt þess vegna finnst mér óþolandi að horfa upp á sömu deilurnar aftur, nú eru afleiðingarnar að innlagnir stöðvast. Þórarinn er maður mikillar reynslu og maður margra orða en getur hann komið sterkur inn. Mitt mat er að Þórarinn sé ekki maðurinn sem standi vaktina þegar Vogur stendur enn og aftur svona tæpt. Höfundur er áfengis og vímuefnaráðgjafi en hefur aldrei starfað fyrir SÁÁ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun