Sport

Strákarnir okkar byrja Þjóðadeildina í dag á Sýn Sport

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson verður í eldlínunni í dag. 
Hákon Arnar Haraldsson verður í eldlínunni í dag.  Getty/Catherine Steenkeste

Það er heldur betur nóg um að vera á sportrásum Sýnar Sport í dag.

Í hádeginu er bein útsending frá leik Slóveníu og Skotlands og hefst útsending klukkan 12:50 á Sýn Sport Viaplay.

Klukkustund síðar, eða klukkan 13:50, hefst útsending frá leik ÍBV og Breiðabliks í Bestu-deild kvenna og er sú útsending á Sýn Sport Ísland.

Klukkan 15:15 fer í loftið heljarinnar upphitun fyrir landsleik Íslands og Eistlands í Þjóðadeildinni en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og verður í beinni á Sýn Sport.

Klukkan 18:35 hefst síðan útsending frá risaleik Englands og Spánverja í Þjóðadeildinni en hann verður á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×