Sport

Tuchel segir Palmer of oft fjar­verandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Thomas Tuchel þegar hann stýrði enska liðinu í undanúrslitum HM í sumar.
Thomas Tuchel þegar hann stýrði enska liðinu í undanúrslitum HM í sumar. Vísir/Justin Setterfield/Getty Images

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að Cole Palmer sé að missa af of mörgum tækifærum til að sanna sig með enska landsliðinu.

Palmer dró sig úr landsliðshópi Englands fyrir komandi leiki vegna meiðsla. Enskir mæta Spánverjum í Þjóðadeildinni annað kvöld. Fjarvera hans kom nokkuð á óvart þar sem hann hefur byrjað alla fimm leiki Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Tuchel segir hins vegar að Palmer hafi spilað með verki og óþægindum og ekki getað beitt sér af fullum krafti.

„Eftir því sem ég skil er hann að spila með óþægindum og verkjum og hann getur ekki keppt á hæsta stigi með verki. Hann dró sig því úr hópnum og lét okkur vita, sem og Chelsea,“ sagði Tuchel.

Þjóðverjinn segir fjarveru Palmers vera ákveðið áhyggjuefni þegar kemur að stöðu hans hjá landsliðinu.

„Þetta er klárlega glatað tækifæri. Hann missir af of mörgum tækifærum. Ég er ekki að kenna honum um það, þetta er bara staðreynd,“ sagði Tuchel.

„Hann missir af allt of mörgum landsliðsverkefnum vegna meiðsla og ég vil aðeins treysta á það sem ég sé og upplifi með mínu liði. Til þess þarftu að vera í landsliðshópnum.“

Palmer, sem er 24 ára, var ekki valinn í HM-hóp Tuchels og hefur aðeins þrisvar leikið fyrir England síðan Tuchel tók við landsliðinu í janúar 2025.

Palmer er nú erlendis þar sem hann fylgir sérsniðnu æfinga- og endurhæfingarprógrammi vegna meiðslanna. Hann hefur haft með sér endurhæfingarþjálfara frá Chelsea í ferðinni.

Tuchel segir þó ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af því að leikmenn setji félagslið sín framar landsliðinu.

„Við erum ekki að stjórna álagi. Þegar ég var í félagsliðsþjálfun notaði ég hugtakið landsleikjahlé og þegar maður heyrir það frá hinni hliðinni er þetta allt önnur mynd,“ sagði Tuchel.

„Þetta er samkeppnisumhverfi en líka umhverfi sem leikmennirnir elska að vera hluti af. Það er það sem samheldni og bræðralag snýst um.“

Declan Rice, Tino Livramento, Marcus Rashford og Kobbie Mainoo eru einnig farnir úr enska hópnum vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×