Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar 24. september 2026 15:46 Margt bendir til þess að við séum á leið í kreppu undir oki verðbólgu og hárra vaxta. Stýrivextir eru komnir í 8%, verðbólgan hefur verið yfir 5% átta mánuði í röð og hagkerfið er farið að dragast saman. Atvinnuleysi eykst og raunverð húsnæðis hefur lækkað mánuðum saman. Seðlabankinn og ríkisstjórnin virðast með stefnu sinni vera að þvinga hagkerfið í samdrátt. Það mun koma samfélagi sem byggir á hagvexti í óefni. Það þarf að ná verðbólgunni niður. En við megum ekki gleyma því að það er ekki hægt að spara sig út úr kreppu. Við eigum í raun ekki annan kost sem samfélag en að vaxa, auka verðmætasköpun og hagvöxt. Án þess hækka laun ekki í raun og lífskjör batna ekki. Ég er ekki þjóðhagfræðingur. En sem gamall krati sem nú býr á Vestfjörðum sé ég efnahagslega framtíð okkar byggja á fjórum þáttum. 1. Hallalaus rekstur, lánsfjármagnaðar fjárfestingar og neysla Það er munur á því að taka lán fyrir daglegum rekstri og að taka lán til að byggja upp eignir sem skila arði í áratugi. Heimili sem tekur lán fyrir matarinnkaupum er í vanda. Heimili sem tekur lán til að kaupa sér þak yfir höfuðið er að byggja upp framtíð sína. Sama gildir um ríkið. Rekstur skóla, heilbrigðisþjónustu og annarrar grunnþjónustu verður að standa undir sér. Hann þarf að fjármagna með sköttum, án halla, ár eftir ár. Það er spurning um ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum. Fjárfesting í innviðum er annars eðlis. Samtök iðnaðarins meta að uppsöfnuð viðhaldsskuld innviða á Íslandi nemi um 680 milljörðum króna. Þar af eru 265–290 milljarðar í vegakerfinu einu. Skuldin hefur vaxið um hundruð milljarða á fáum árum. Við borgum hana með slysum, töfum, töpuðum tækifærum og hærri kostnaði síðar. Þessa uppbyggingu á að fjármagna með lánum og greiða niður á líftíma mannvirkjanna, eins og hvert skynsamt fyrirtæki gerir. Þetta er engin jaðarhugmynd. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, sem áður var seðlabankastjóri Kanada og síðar Englandsbanka, innleiddi þessa aðferð í fjárlögum sínum í fyrra. Kanadamenn skipta nú fjárlögunum í tvennt: í rekstur, sem á að vera hallalaus, og fjárfestingu, sem má fjármagna með lánum. Tímasetningin skiptir líka máli. Þegar hagkerfið kólnar og hægir á íbúðabyggingu losnar um fólk og tæki í byggingariðnaði. Þá er rétti tíminn til að ráðast í vegi, hafnir, veitur og orkuinnviði. Þannig viðhöldum við störfum og neyslu heimilanna og byggjum um leið undir hagvöxt framtíðarinnar. 2. Sjávarútvegur og fiskeldi Sjávarútvegurinn hefur verið hryggjarstykki íslensks efnahagslífs og verður það áfram. Verð á íslenskum sjávarafurðum á erlendum mörkuðum hefur aldrei verið hærra og útflutningsverðmætið hefur vaxið þrátt fyrir kvótaskerðingar. En magnið er takmarkað af því sem stofnarnir þola. Vöxturinn verður því að koma úr meiri verðmætum á hvert kíló: meiri fullvinnslu, betri nýtingu hliðarafurða og nýsköpun í tækni og markaðssetningu. Fiskeldið er síðan eitt stærsta vaxtartækifæri okkar. Á fáum árum hefur það breytt stöðu Vestfjarða. Byggðir sem voru að tæmast hafa fengið nýtt líf, ungt fólk flytur heim og fyrirtæki eru stofnuð. Fiskeldi á Vestfjörðum skilar nú um 50 milljörðum króna á ári í útflutningstekjum fyrir okkur öll. Samt nýtum við ekki nema hluta af því sem firðirnir okkar bera. Ef við nýttum burðarþol fjarðanna til fulls gæti fiskeldið skilað 45 milljörðum króna til viðbótar á ári. Ísafjarðardjúp eitt og sér gæti skilað um 14 milljörðum. Þetta eru tekjur sem við látum liggja ónýttar á meðan við ræðum um niðurskurð og aðhald. Fiskeldið þarf skýran og stöðugan lagaramma með ströngum umhverfiskröfum, en það þarf líka innviði. Án góðra vega, öruggra hafna og traustrar raforku nær þessi atvinnugrein aldrei fullum styrk. Þannig getur hið opinbera byggt upp atvinnulífið. 3. Græn orka: vatnsafl og vindur Hrein orka er hin stóra auðlindin okkar og forskot sem fáar þjóðir eiga. Samt höfum við látið hana liggja vannýtta árum saman. Á meðan hafa orkuskipti, ný atvinnustarfsemi og vöxtur núverandi fyrirtækja kallað á sífellt meiri orku. Hvað það kostar okkur sést vel á tölunum. Landsvirkjun hefur greitt ríkinu 90 milljarða króna í arð á fjórum árum, af virkjunum sem að mestu voru byggðar fyrir áratugum. Það er ánægjulegt fyrir gamlan krata að vitna í Viðskiptaráð, en greining ráðsins er skýr. Með tvöföldun raforkuframleiðslu gætu skatttekjur hins opinbera aukist um 400 milljarða króna til 2040. Þá eru ótaldar beinar tekjur orkufyrirtækjanna af orkusölu. Vatnsaflið hefur verið grunnur íslensks orkukerfis í hálfa öld og á enn mikið inni. Hér fyrir vestan þekkjum við vandann af eigin raun. Vestfirðir framleiða ekki næga orku fyrir okkur sem þar búa, flutningskerfið er veikt og straumleysi er algengt. Hvalárvirkjun mun skaffa 55 MW og Vatnsdalsvirkjun gæti skapað 30 MW. Þetta eru ekki óraunhæf áform heldur einfaldlega forsenda þess að byggð og atvinnulíf á Vestfjörðum geti vaxið og dafnað. Vindorkan er næsta skrefið. Nýlega var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, formlega gangsett. Það er tímamótaskref en um leið áminning um hversu seint við erum á ferðinni. Nágrannaþjóðir okkar hafa byggt upp vindorku í áratugi á meðan við höfum rætt málið og rifist. Fáar þjóðir hafa jafn góð vindskilyrði og við. Þeim sem halda því fram að vindmyllur muni eyðileggja náttúru Íslands er bent á hinar fögru sveitir Danmerkur, Ítalíu og Frakklands. Vatnsaflið og vindurinn styðja hvort annað. Þegar vindurinn blæs geta lónin safnað vatni og þegar lygnir tekur vatnsaflið við. Þannig nýtast auðlindirnar betur saman en í sitt hvoru lagi. Það þarf að ganga fram af virðingu fyrir náttúrunni og í sátt við nærsamfélög sem eiga að njóta ávinningsins beint. En við verðum að hætta að láta verkefni velkjast árum saman í kerfinu. Græn orka á að vera grunnur að verðmætasköpun hér heima, í matvælaframleiðslu, fiskeldi, iðnaði og nýsköpun. 4. Hugvit og þekking Til lengri tíma verður hagvöxtur ekki drifinn áfram af auðlindum einum saman heldur af fólki. Menntun, rannsóknir og nýsköpun eru það sem breytir fiski í lyf og snyrtivörur, orku í hátæknivörur og hugmyndum í fyrirtæki. Við sjáum þetta nú þegar. Tækni- og hugverkaiðnaðurinn skilaði 370 milljörðum króna í útflutningstekjur á síðasta ári og fór í fyrsta sinn fram úr sjávarútveginum. Alvotech og Kerecis, sem bæði eru sprottin úr íslensku hugviti, velta saman rúmlega 100 milljörðum króna á ári. Kerecis breytti fiskroði, sem áður var hent, í lækningavöru sem seld er um allan heim og varð til hér fyrir vestan. Við eigum að fjárfesta í menntakerfinu á öllum stigum, í háskólum og rannsóknum um allt land og í umhverfi sem gerir ungu fólki kleift að stofna fyrirtæki og byggja þau upp hér heima. Þekkingargreinarnar eru líka þær greinar sem geta blómstrað hvar sem er, á Flateyri jafnt sem í Reykjavík, ef innviðirnir og aðgengi að fjármagni eru til staðar. Lokaorð Leiðin út úr efnahagsvandanum liggur ekki í niðurskurði á öllum sviðum í bið eftir að vextir lækki. Hún liggur í skýrri forgangsröðun: aga í rekstri hins opinbera og djörfung í fjárfestingu til framtíðar. Við jafnaðarmenn höfum svo alltaf trúað því að verðmætasköpun og réttlát skipting hennar haldist í hendur. Það er ekkert til að skipta nema það sé fyrst skapað. Við eigum auðlindirnar, þekkinguna og fólkið. Nú þurfum við kjarkinn til að fjárfesta í framtíðinni. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Runólfur Ágústsson Efnahagsmál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun