Ætlaði aldrei til Manchester United Valur Páll Eiríksson skrifar 22. september 2026 17:15 Lewis Hall hefur farið vel af stað með Newcastle á nýrri leiktíð. Michael Driver/MI News/NurPhoto via Getty Images Lewis Hall, bakvörður Newcastle United á Englandi, segir aldrei hafa verið spurning fyrir sig að skrifa undir nýjan samning frekar en að fara til Manchester United.
Hall var mikið orðaður við Manchester United í sumar er félagið leitaði vinstri bakvarðar. Manchester-liðið lagði þó aldrei fram tilboð í bakvörðinn knáa sem hefur leikið gríðarvel fyrir Newcastle eftir skipti frá Chelsea fyrir þremur árum. Hall segir orðrómana lítil áhrif hafa haft á sig og hann hafi aldrei íhugað alvarlega að færa sig um set. „Nei, satt best að segja fannst mér það ekki. Ég geri ráð fyrir að þegar þú ert orðaður við annað lið þýðir það að þú sért að gera eitthvað rétt. Ég held að það sé bara hrós fyrir eigin frammistöðu og hvernig þú ert sem leikmaður og sem persóna,“ segir Hall. „Ég tók því sem jákvæðum hlut en á sama tíma vissi ég hversu mikið ég elska að spila hér og ég vissi, eftir að stjórinn kom, hversu metnaðarfullar áætlanirnar voru og hverju við vildum ná fram,“ segir Hall. Koma Matthias Jaissle, nýs þjálfara Newcastle, hafi því haft sitt að segja. Það hafi aldrei verið spurning fyrir Hall að skrifa undir nýjan samning, frekar en að róa á ný mið. „Eftir fá samtöl og fáar æfingar vissi ég að stjórinn yrði virkilega góður fyrir þetta félag og ég vissi að sem lið væri virkilega mikilvægt að fá inn nýja leikmenn og bæta hópinn og um leið og við gerðum það var í raun engin spurning að skrifa undir,“ segir Hall.
Newcastle United Enski boltinn Manchester United Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Sjá meira