Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2026 22:40 Día Karen Fjölvarsdóttir er í stórum hópi fólks sem styður Ríkarð Eyberg Árnason til sigurs og myndi helst vilja styðja hann áfram í alla nótt. Samsett/Viktor/Vísir Hin ellefu ára gamla Día Karen Fjölvarsdóttir fékk að vaka aðeins lengur til þess að styðja Ríkarð Eyberg Árnason áfram til sigurs í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk í kvöld. Hún stal senunni í beinni útsendingu Vísis frá hlaupinu.
Día viðurkenndi að mamma sín væri farin að ókyrrast yfir því að hún væri enn á fótum en vildi halda áfram að styðja góðan vin fjölskyldunnar, Ríkarð, sem lengst. „Ef maður ætlar að vinna þá þarf pepp líka. Mamma mín fór að skutla hundinum mínum heim og ég sagði: Af hverju verð ég ekki bara eftir? Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann að hafa mjög mikið pepp og marga stuðningsmenn,“ sagði Día við Garp I. Elísabetarson en viðtalið má sjá hér að neðan. Hlaupið hófst klukkan 9 á laugardagsmorgun og þegar viðtalið var tekið um tíuleytið í kvöld hafði Ríkarð því hlaupið 37 hringi, á 37 klukkutímum, eða samtals 247,9 kílómetra. Þeir Kristján Karl Björnsson stóðu tveir eftir að loknum 30 hringjum, þegar Íris Arna Ingólfsdóttir hætti. „Þá finnst manni þetta aðeins erfiðara“ „Þetta er búið að vera gaman en núna til dæmis er Rikki orðinn aðeins þreyttur og þá finnst manni þetta aðeins erfiðara. En ég vona bara að hann komist lengra og það er svo gaman að horfa á þegar maður þekkir einhvern,“ sagði Día en er hún ekki orðin þreytt? „Jú, ég er að verða svolítið þreytt.“ Garpur spurði þá hvort hún fengi ekki örugglega frí einhvern part af skóladeginum á morgun: „Frí í fyrstu tveimur tímunum. Það er fínt. Mér finnst svo ótrúlega gaman að vera hérna. Horfa á allt þetta stuðningsfólk mæta og hvetja, og sjá hann mæta í mark og fara annan hring. Hvernig hann getur þetta… ég gæti örugglega bara farið tvo, eða kannski bara einn,“ sagði Día hógvær áður en hún viðurkenndi að núna þyrfti hún að fara að halda heim að sofa. Aðspurð hvort að hún ætti sjálf eftir að keppa í bakgarðshlaupi svaraði Día: „Ef ég verð dugleg að hlaupa og verð einhver efnileg hlaupamanneskja þá kannski prófa ég að taka hring, og prófa mig áfram með þetta.“ Día kvaðst þá reikna með að velja mömmu, pabba og systur sína í teymið til að hjálpa sér í hlaupinu en glotti þegar Garpur spurði hvort hann treysti þeim alveg: „Ekki henni reyndar,“ sagði Día og benti á stóru systur sína. „Hún myndi örugglega bara sofna.“
Hlaup Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Sjá meira