Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Agnar Már Másson skrifar 19. september 2026 16:00 Mikið hefur gustað um SÁÁ undanfarnar vikur. Theódór stingur niður penna á Vísi. Samsett Mynd Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Hann óttast samt að brotthvarf reynslumikils framkvæmdastjóra muni draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ og vonast til að fundin verði leið fyrir hana aftur til starfa, þó með skýrari verkaskiptingu. „En tvo þarf til.“
Theódór S. Halldórsson var framkvæmdastjóri SÁÁ, Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavanda, á árunum 1990–2003 og er í dag varamaður í aðalstjórn SÁÁ, skrifar skoðanagrein á Vísi um málið en töluvert hefur gengið á hjá SÁÁ eftir að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ. Í kjölfarið tilkynntu Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga og Þóra Björk Ingólfsdóttir fagstjóri á Vík að þær myndu láta af störfum. Theódór orðar það sem svo að Ragnheiður Hulda hafi ekki sinnt forstjórastarfi sínu í samræmi við óskir stjórnar og þegar stjórnin hafi knúið á um athafnir hafi hún fremur sagt upp en að takast á við verkefnin. „Það er síður en svo óalgengt að stjórnendur láti af störfum þegar sjónarmið þeirra og stjórnar rekast á. Aftur á móti er eftirleikurinn af þessari uppsögn fáheyrður,“ skrifar hann. Segir hann Valgerði Rúnarsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra lækninga, hafa gengið fram fyrir skjöldu og krafist þess að Ragnheiður yrði endurráðin og sagt að alls ekki mætti auglýsa eftir nýjum forstjóra. „Þegar ekki var orðið við þessari kröfu þá sagði Valgerður upp og gekk út,“ bætir Theódór við. Sjá einnig: SÁÁ Telur hann tilganginn augljóslega hafa verið að knýja stjórnina til að fá Ragnheiði aftur til starfs og bakka út úr afskiptum af störfum hennar. Til að gefa kröfunum vægi hafi Valgerður sakað stjórn SÁÁ um að hafa farið langt inn á svið faglegrar stjórnunar heilbrigðisþjónustunnar og sagt það meðal annars í tölvupósti til aðalstjórnar SÁÁ. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ hefur sagt að enginn fótur sé fyrir þeim fullyrðingum Valgerðar. Klassísk en undarleg valdabarátta „Ekkert fer á milli mála að hér er um klassíska en mjög undarlega valdabaráttu að ræða,“ ritar Theódór. „Forstjórinn segir upp, en Valgerður setur starf sitt að veði til að hún verði „endurráðin“. Sú endurráðning átti hins vegar að tryggja að stjórn SÁÁ bakkaði út úr lögmæltu ábyrgðar- og eftirlitshlutverki sínu og léti starfsmönnum eftir að stjórna starfsemi samtakanna.“ Hann segir það skína í gegn að Valgerður og Ragnheiður hafi viljað halda störfum sínum gegn því að stjórn SÁÁ hætti „að sinna þeim verkefnum sem henni ber skylda til“ og að völd yrðu færð frá stjórninni til þeirra tveggja. „Þeim Valgerði og Ragnheiði tókst að æsa upp hluta af starfsfólki SÁÁ og fá það til að skrifa undir vantraust á stjórn samtakanna. Samt snertu deilur þeirra við stjórnina starfsfólkið á engan hátt.“ Hafi viljað setja stjórnina til hliðar Hann segir það grátlegt að verða vitni að tilraun tvímenninganna til „að sölsa undir sig valdatauma og setja stjórn SÁÁ til hliðar“. Þetta hafi valdið miklu uppnámi og stórskaðað SÁÁ. „Heggur sá er hlífa skyldi. Skjólstæðingar SÁÁ á göngudeild, á Vogi og í Vík eru skildir eftir í lausu lofti.“ Theódór, sem er sem fyrr segir varamaður í aðalstjórn SÁÁ, segir þó að framkvæmdastjórn og aðalstjórn samtakanna hafi ekki misst sjónar á ábyrgðarhlutverki sínu og tilgangi starfseminnar. „Aldrei kom til greina að afhenda öðrum það hlutverk.“ Hann viðurkennir þó að brotthvarf Valgerðar og það rask sem því kunni að fylgja dragi án efa til skemmri eða lengri tíma úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ. „Með Valgerði hverfur mikil þekking og áratuga reynsla af meðferð fólks með fíknisjúkdóma. Af starfskröftum hennar er mikil eftirsjá. Ég vona enn að hægt verði að finna leið fyrir Valgerði aftur til starfa hjá SÁÁ, með skýra verkaskiptingu milli stjórnar, stjórnenda og fagfólks. Það væri að mínu mati farsælli niðurstaða fyrir alla – og fyrst og fremst fyrir þá skjólstæðinga sem SÁÁ vinnur fyrir. En tvo þarf til.“
SÁÁ Fíkn Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum Sjá meira