Íslenski boltinn

„Töpuðum á réttan hátt”

Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, er sáttur með frammistöðuna þrátt fyrir tap.
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, er sáttur með frammistöðuna þrátt fyrir tap. Anton/Vísir

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var sár eftir 1-0 tap liðsins gegn FH í Kaplakrika en mjög ánægður með frammistöðu sinna leikmanna. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu.

„Ég er rosalega sorgmæddur fyrir stelpurnar. Þær lögðu svo mikið í leikinn. Ég er sár yfir því að hafa tapað þegar mér fannst það eiginlega ótrúlegt miðað við hvernig seinni hálfleikurinn spilaðist,“ sagði Óskar Smári eftir leik.

Stjarnan varðist vel lengst af og hélt út fram á lokamínútu venjulegs leiktíma. Óskar Smári var sérstaklega ánægður með hvernig hans lið óx inn í leikinn.

„Varnarleikurinn var góður og í seinni hálfleik, eftir því sem leið á leikinn, fannst mér við alltaf verða líklegri og líklegri. Það var þessi tilfinning að þetta væri okkar leikur og við ætluðum að koma hingað og vinna hann.“

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var sár eftir 1-0 tap liðsins gegn FH í Kaplakrika en mjög ánægður með frammistöðu sinna leikmanna. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu.

„Ég er mjög ánægður með frammistöðuna og mjög ánægður með stelpurnar fyrir að hafa lagt allt í þetta. Útkoman er fúl en það er margt jákvætt sem við getum tekið með okkur í næstu leiki.“

Óskar Smári hrósaði einnig hugarfari leikmanna sinna og nefndi sérstaklega hversu ungt lið Stjarnan var með inni á vellinum undir lok leiks.

„Mér fannst stelpurnar geggjaðar í dag. Þetta er kornungt lið og nokkrir leikmenn voru að fá sínar fyrstu mínútur. Bæði eldri leikmenn og yngri leikmenn voru öflugir í dag.“

Hann sagði vissulega ýmislegt sem mætti laga en það væri ekki það sem hann tæki helst úr leiknum.

„Ég er ekki að pæla í því núna. Ég er að pæla í viðhorfinu og hvernig við fórum inn í leikinn. Ég er gríðarlega ánægður með það.“

Stjarnan tapaði einnig síðasta leik sínum gegn Víkingi en Óskari Smára fannst frammistaðan í Kaplakrika allt önnur.

„Auðvitað er fúlt að tapa svona og það svíður en þarna taparðu á réttan hátt, finnst mér. Við vorum að sækja til að vinna leikinn þegar við fengum markið á okkur.“

„Ég get alveg tapað svona þegar leikmenn leggja 110 prósent í verkefnið og andinn og hugarfarið er þannig að við erum að reyna að vinna leikinn. Hrós á stelpurnar í dag. Þær lögðu sig fram, spiluðu saman og sýndu fullt af flottum sóknarupphlaupum í seinni hálfleik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×