Handbolti

Í skýjunum með dönsku ný­lenduna í Þorpinu

Árni Gísli Magnússon skrifar
Fögnuðurinn var gríðarlegur hjá Þórsurum eftir sigurinn á erkifjendunum.
Fögnuðurinn var gríðarlegur hjá Þórsurum eftir sigurinn á erkifjendunum. Facebook/@thorhandbolti

„Þetta var aldrei í hættu, við mættum vel innstilltir í þetta og bara kláruðum þennan leik, ógeðslega sáttur með þetta“ sagði Þórður Tandri Ágústsson, leikmaður Þórs eftir frábæran sigur á grönnunum í KA í Olís-deildinni í handbolta.

Lokatölur urðu 31-35 fyrir Þór eftir æsispennandi leik.

Hvernig líður þér akkúrat núna?

„Bara aldrei verið betri, bara aldrei“, sagði Þórður í gærkvöld og var augljóslega enn í sigurvímu.

Þórsarar byrjuðu leikinn illa og voru 7-2 undir eftir níu mínútna leik.

„Við vorum bara sofandi í byrjun og tempóið var lélegt og tókum bara leikhlé og byrjuðum svona að saxa á þetta hægt og rólega og svo bara fengum við stuðningsmennina með okkur og þá bara fór þetta að tikka.“

„Mér fannst við ekki alveg gíraðir einhvern veginn, allavega ég persónulega fann bara svona meiri eldmóð í mér þarna í seinni hálfleik og vorum að setja hnefann upp í stúku og þetta var bara sturlað.“

Urðu að sigra upp á stoltið

Þór og KA mættust tvívegis í fyrra og hafði KA betur í fyrri leik liðanna en jafntefli varð niðurstaðan í seinni leiknum. Það má því með sanni segja að þessi sigur hafi verið kærkominn fyrir Þórsara.

„Við urðum að vinna, bara upp á stoltið, og höfðum alveg fulla trú á þessu frá byrjun sko þó svo við byrjuðum illa og ætluðum okkur að sækja þessi tvo stig og vera með montréttinn.“

Þórður Tandri Ágústsson lét til sín taka í KA-heimilinu í gærkvöld.thorsport.is

Dönsk nýlenda í Þorpinu

Þórsliðið missti leiki oft niður í jafntefli eða tap á lokamínútunum á síðasta tímabili en lokamínúturnar í dag féllu svo sannarlega Þórs megin.

„Við erum náttúrulega komnir með danska nýlendu hérna og þeir stigu bara hrikalega vel upp hérna í lokin og þeir eru allir geggjaðir og ógeðlega ánægður með þá þannig að bara já við erum með meiri breidd og erum bara meira tilbúnir í leikina finnst mér“.

Þórsarar fengu fjóra unga danska leikmenn til liðs við sig fyrir tímabilið og skiluðu þeir allir sínu í gær. Þórður fer fögrum orðum um frændur sína.

„Bara ekkert eðlilega vel, þetta eru bara toppmenn og menningin og svona er bara svipuð og þeir eru bara geggjaðir og ógeðslega góðir í handbolta, ógeðslega mikinn metnað, bara ógeðslega gott að hafa fengið þá hingað í Þorpið.“

Bertram Simonsen fékk rautt spjald í dag en það spjald er oft dregið upp í rimmum þessara liða.

„Já ég hef gert það og það er aldrei gaman en það er bara mikill hiti og hann bara lærir af þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×