Hugleiðing á degi náttúrunnar Kolbrún Haraldsdóttir skrifar 17. september 2026 09:01 Í dag er dagur náttúrunnar. Það er við hæfi að staldra við á þessum degi og spyrja: Hvernig ætlum við að skila landinu okkar til komandi kynslóða? Náttúran á undir högg að sækja. Ásókn í land, orku og náttúruauðlindir virðist sífellt aukast og stór hluti umræðunnar um frekari virkjanir er settur í búning orkuskipta. Þar finnst mér stundum vera holur hljómur. Orkuskipti hljóta fyrst og fremst að snúast um að við drögum úr notkun jarðefnaeldsneytis og skiptum yfir í endurnýjanlega orkugjafa. Það er allt önnur umræða hvort virkja eigi meira af íslenskri náttúru til að sjá gagnaverum, stóriðju og annarri orkufrekri starfsemi fyrir rafmagni. Við eigum að geta rætt það af hreinskilni og kallað hlutina sínum réttu nöfnum. Það þarf að verða breyting á ef ekki á illa að fara. Stjórnvöld, náttúruverndarfólk og almenningur – fólk sem þrátt fyrir ólíkar skoðanir vill í flestum tilfellum landinu okkar vel – þarf að setjast niður og finna leið til sátta. Til þess þarf að hlusta og til þess þarf að semja. Og til þess þurfa allir að vera tilbúnir að gefa eitthvað eftir. Ég minni á að stjórnvöld þurfa einnig að tala við okkur almenning – ekki aðeins við orkufyrirtækin og þá sem sækjast eftir aukinni orkuöflun.Það er ábyrgðarhluti stjórnvalda að kalla ólík sjónarmið að borðinu og tryggja að rödd almennings og náttúruverndar fái þar raunverulegt vægi. Þjóðarsátt verður ekki til nema allir aðilar fái að taka þátt í samtalinu. Ég hef skilning á því að stjórnmálamenn séu undir þrýstingi frá ólíkum hagsmunum og þeim sem vilja fá aðgang að íslenskri orku til atvinnuuppbyggingar. En stjórnmálamenn eru kjörnir af almenningi og bera ábyrgð á fleiru en efnahagslegum ávinningi til skamms tíma. Þeir bera líka ábyrgð á því að varðveita þau verðmæti sem ekki verða endurheimt þegar þeim hefur einu sinni verið raskað. Við þurfum þjóðarsátt um náttúruna og við þurfum að svara grundvallarspurningunum: Hvar ætlum við að virkja/raska – og hvar ætlum við að vernda? Að mínu mati er ekki sanngjarnt að stilla umræðunni þannig upp að náttúruverndarfólk sé á móti öllum virkjunum og allri nýtingu náttúruauðlinda eða að hún sé trumpísk. En það hljóta að vera til staðir þar sem við sem þjóð getum sagt: Hingað og ekki lengra, þetta svæði ætlum við að varðveita. Og sú ákvörðun þarf að hafa vægi til framtíðar. Undanfarin misseri og daga hefur umræðan um virkjanir og náttúruvernd á köflum minnt meira á stríð en samtal. Fylkingar takast á, tortryggni vex og hvert málið rekur annað. Þessu þarf að linna. Í stríði tapa allir – og í þessu stríði er hætt við að náttúran verði sá aðili sem greiðir hæsta verðið. Náttúran á nefnilega eitt sameiginlegt með börnunum okkar. Hún getur ekki varið sig sjálf. Við höfum Barnasáttmálann vegna þess að við höfum sem samfélag viðurkennt að börn eigi réttindi og að rödd þeirra eigi að heyrast. Við viljum standa vörð um réttindi þeirra og gæta hagsmuna þeirra þegar þau geta það ekki sjálf. Náttúran getur heldur ekki staðið upp og mótmælt. Hún getur ekki skrifað umsögn, setið fundi eða barið í borðið þegar taka á ákvörðun sem breytir henni til frambúðar. Hún er algjörlega háð því að við stöndum vörð um réttindi hennar og hagsmuni. Við höfum náttúruverndarlög, skipulagsferla, mat á umhverfisáhrifum og faglega aðila sem eiga að leggja mat á náttúruverðmæti. Það á að skipta máli. Vernd náttúrunnar má ekki verða aukaatriði sem víkur í hvert sinn sem nógu sterkir hagsmunir kalla eftir orkunni eða annarri röskun á jafnvægi hennar. Náttúran á líka skilið að einhver standi vörð um hana. Þess vegna skora ég á alla þá sem fara með málefni umhverfis, náttúru og orkunýtingar að hafa frumkvæði að raunverulegu samtali um þjóðarsátt um vernd og nýtingu náttúruauðlinda okkar. Setjumst niður og ákveðum hvað við getum og viljum nýta. En höfum líka kjark til að ákveða hvað við ætlum að vernda til framtíðar. Ákveðum hvaða náttúrugersemar við ætlum að afhenda komandi kynslóðum óspilltum. Það getur vel verið að einhverjir telji mig draumóramanneskju. Kannski verður mér sagt að hagsmunirnir séu of miklir, sjónarmiðin of ólík og átökin of mikil til að þjóðarsátt geti náðst. En ég neita að láta ræna mig þeim draumi að náttúran fái notið réttlætis. Því án drauma um betri framtíð og hugrekkis til að gera þá að veruleika – breytist ekkert. Höfundur er þroskaþjálfi, sérkennari og félagi í náttúruverndarsamtökum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Dagur íslenskrar náttúru Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar