Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar 16. september 2026 15:01 Í dag er Dagur íslenskrar náttúru - og náttúran grætur. Hún grætur stórum, þykkum regndropum sem berja á rúðum landsmanna. Hún grætur yfir því að ríkisstjórnarflokkar sem lofuðu skýrari og sterkari lagaumgjörð um sjókvíaeldi hafi enn ekki tekist að ljúka því mikilvæga verkefni. Hún grætur yfir því að fólk sem hefur áhyggjur af vindorkuverum í náttúru landsins sé líkt við Trump í orðræðu hæstvirts ráðherra umhverfismála. En fyrst og fremst grætur hún yfir því að rödd hennar hafi nánast þagnað á Alþingi Íslendinga. Að náttúruvernd sé farin úr tísku, líkt og flík sem maður eigi helst að skammast sín fyrir að klæðast. En þó stjórnmálin bregðist, veit fólkið í landinu að náttúran er eitt það dýrmætasta sem við eigum. Hún er grunnur að heilsu okkar, bæði á sál og líkama. Náttúran er líka stoð menningar okkar og lista. Það má sjá í verkum Kjarvals, Rúríar og RAX, heyra í tónlist Bjarkar og finna í verkum skálda á borð við Steinunnar Sigurðardóttur og Jónasar Hallgrímssonar. Síðast en ekki síst er íslensk náttúra undirstaða efnahagslegrar velferðar Íslands. Sjávarútvegur, landbúnaður, ferðaþjónusta og orkuframleiðsla byggja öll, með einum eða öðrum hætti, á auðlindum og gæðum íslenskrar náttúru. Við vitum líka að náttúruna má ekki blóðmjólka. Ef gengið er of nærri henni tapa allir til lengri tíma. Nýting hennar þarf að vera sjálfbær, varfær og byggð á langtímahugsun. Við þurfum að þora að ræða þessa langtímahagsmuni; líka þegar það er óþægilegt. Við þurfum að muna að náttúruvernd er ekki hindrun fyrir velferð heldur ein af forsendum hennar. Þá mun stytta upp og sól skína í heiði. Munum, kæru landsmenn, í dag og alla aðra daga að þakka fyrir fjölbreyttu auðæfi sem náttúran okkar felur í sér. Þau eru ekki sjálfgefin. Gleðilegan dag íslenskrar náttúru. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Hrund Logadóttir Dagur íslenskrar náttúru Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Í dag er Dagur íslenskrar náttúru - og náttúran grætur. Hún grætur stórum, þykkum regndropum sem berja á rúðum landsmanna. Hún grætur yfir því að ríkisstjórnarflokkar sem lofuðu skýrari og sterkari lagaumgjörð um sjókvíaeldi hafi enn ekki tekist að ljúka því mikilvæga verkefni. Hún grætur yfir því að fólk sem hefur áhyggjur af vindorkuverum í náttúru landsins sé líkt við Trump í orðræðu hæstvirts ráðherra umhverfismála. En fyrst og fremst grætur hún yfir því að rödd hennar hafi nánast þagnað á Alþingi Íslendinga. Að náttúruvernd sé farin úr tísku, líkt og flík sem maður eigi helst að skammast sín fyrir að klæðast. En þó stjórnmálin bregðist, veit fólkið í landinu að náttúran er eitt það dýrmætasta sem við eigum. Hún er grunnur að heilsu okkar, bæði á sál og líkama. Náttúran er líka stoð menningar okkar og lista. Það má sjá í verkum Kjarvals, Rúríar og RAX, heyra í tónlist Bjarkar og finna í verkum skálda á borð við Steinunnar Sigurðardóttur og Jónasar Hallgrímssonar. Síðast en ekki síst er íslensk náttúra undirstaða efnahagslegrar velferðar Íslands. Sjávarútvegur, landbúnaður, ferðaþjónusta og orkuframleiðsla byggja öll, með einum eða öðrum hætti, á auðlindum og gæðum íslenskrar náttúru. Við vitum líka að náttúruna má ekki blóðmjólka. Ef gengið er of nærri henni tapa allir til lengri tíma. Nýting hennar þarf að vera sjálfbær, varfær og byggð á langtímahugsun. Við þurfum að þora að ræða þessa langtímahagsmuni; líka þegar það er óþægilegt. Við þurfum að muna að náttúruvernd er ekki hindrun fyrir velferð heldur ein af forsendum hennar. Þá mun stytta upp og sól skína í heiði. Munum, kæru landsmenn, í dag og alla aðra daga að þakka fyrir fjölbreyttu auðæfi sem náttúran okkar felur í sér. Þau eru ekki sjálfgefin. Gleðilegan dag íslenskrar náttúru. Höfundur er þingmaður Framsóknar.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun