Framtíð endurhæfingar á Norðurlandi Ingibjörg Isaksen skrifar 17. september 2026 07:03 Um áratugaskeið hefur byggst upp öflug endurhæfingarþjónusta á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit. Þar hefur orðið til sérhæfð þekking, reynsla og faglegt umhverfi sem hefur þjónað fólki á Norðurlandi og víðar um land. Nú standa yfir miklar breytingar. Vegna ástands húsnæðisins hefur starfsemin þurft að færast frá Kristnesi. Hluti hennar hefur verið fluttur til Sjúkrahússins á Akureyri og unnið er að lausnum fyrir aðra þætti þjónustunnar. Það er skiljanlegt að grípa þurfi til tímabundinna ráðstafana þegar aðstæður kalla á það. Öryggi sjúklinga og starfsfólks verður alltaf að vera í fyrirrúmi. En bráðabirgðaráðstöfun leysir ekki úr þeirri óvissu sem ríkir um framtíð þjónustunnar og má ekki festast í sessi einfaldlega vegna þess að endanlegar ákvarðanir dragast á langinn. Kristnes á sér merka sögu. Þar var fyrst reist berklahæli árið 1927 og staðurinn verður því hundrað ára á næsta ári. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur rekið þar endurhæfingardeild um áratuga skeið með góðum árangri. Áhyggjur af framtíð starfseminnar eru því skiljanlegar. Yfir 2.500 manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að tryggja nauðsynlegt fjármagn til viðhalds og uppbyggingar svo þessi mikilvæga starfsemi veikist ekki eða leggist af. Endurhæfing er enda arðbær fjárfesting, bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið. Þekking sem tekur mörg ár að byggja upp Kristnes hefur sérstaka stöðu í íslenskri endurhæfingarþjónustu. Fram til þessa hefur sérhæfð og umfangsmikil endurhæfing einkum verið veitt á þremur stöðum: Reykjalundi, Grensás og Kristnesi. Tvær þessara starfsstöðva eru á höfuðborgarsvæðinu en Kristnes hefur gegnt lykilhlutverki í að tryggja sérhæfða endurhæfingu utan þess. Á Kristnesi hefur þjónustan verið byggð upp á einum stað, í umhverfi sem hentar vel til endurhæfingar. Þar hefur skapast faglegt samfélag þar sem ólíkar heilbrigðisstéttir vinna saman og þjónustan myndar samfellt ferli. Einstaklingur í endurhæfingu getur þurft á þjónustu margra fagstétta að halda á sama tíma. Þegar hún er samþætt er auðveldara að halda utan um meðferðina, laga hana að þörfum hvers og eins og styðja við bata. Húsnæði undir heilbrigðisþjónustu verður að uppfylla þær kröfur sem til þess eru gerðar. Þegar næstu skref eru metin þarf þó einnig að horfa til verðmætis staðsetningarinnar, umhverfisins, þjónustunnar og þekkingarinnar sem þar hefur byggst upp. Bráðabirgðalausn má ekki festa sig í sessi Til skamms tíma getur verið óhjákvæmilegt að dreifa þjónustunni á fleiri staði. Slíkt fyrirkomulag má hins vegar ekki festast sessi. Dreifð þjónusta getur verið flóknari og kostnaðarsamari í rekstri, dregið úr samhæfingu fagstétta og verið verri fyrir sjúklinga. Fólk sem glímir við skerta færni eftir veikindi eða slys á ekki að þurfa að fara á milli staða til að fá þá heildstæðu endurhæfingu sem það þarf. Þegar framtíðarlausnir eru bornar saman þarf því að meta kostnað og gæði þjónustunnar. Ekki nægir að horfa á kostnað við nauðsynlegar úrbætur á Kristnesi heldur einnig hvað aðrar lausnir kosta til lengri tíma, áhrif þeirra á sjúklinga og hvort þær varðveiti faglegt umhverfi og samhæfingu þjónustunnar. Óvissan hefur einnig áhrif á starfsfólkið. Sérhæfður mannauður og reynsla verða ekki byggð upp á einni nóttu. Dragist ákvörðun um staðsetningu, umfang og framtíð starfseminnar á langinn eykst hættan á að fólk leiti annað og verðmæt þekking tapist af svæðinu. Jafnt aðgengi óháð búsetu Nú stendur yfir stefnumótun um framtíð endurhæfingarþjónustu á Íslandi. Í drögum að hvítbók heilbrigðisráðuneytisins er lögð áhersla á heildstæða þjónustu og jafnt aðgengi að endurhæfingu óháð búsetu. Kristnes er prófsteinn á hvort þeirri stefnu verði fylgt utan höfuðborgarsvæðisins. Markmið um jafnt aðgengi þarf að endurspeglast í ákvörðunum og fjárveitingum. Það væri mikil afturför ef fólk á landsbyggðinni þyrfti í auknum mæli að sækja sérhæfða endurhæfingu suður. Endurhæfing getur staðið yfir í langan tíma og þá skiptir nálægð við heimili, fjölskyldu og stuðningsnet miklu. Búseta á ekki að gera fólki erfiðara fyrir að fá þá þjónustu sem það þarf til að endurheimta heilsu, færni og sjálfstæði. Starfshópur sem heilbrigðisráðuneytið skipaði til að vinna að framtíðarsýn fyrir fasteignir Kristnesspítala hefur skoðað aðstæður á staðnum, en niðurstöður hans liggja ekki fyrir. Engar framkvæmdir standa nú yfir á Kristnesi þótt ljóst sé að verulegra úrbóta sé þörf til að húsnæðið verði á ný fullnægjandi og heilnæmt. Á meðan ríkir áfram óvissa um framtíð þjónustunngar. Tími skýrra ákvarðana Ábyrgðin liggur nú hjá stjórnvöldum. Þau þurfa að eyða óvissunni og leggja fram skýra, tímasetta áætlun um framtíð sérhæfðrar endurhæfingarþjónustu á Norðurlandi, staðsetningu hennar og hvernig tryggja eigi að starfsfólk og sérþekking haldist á svæðinu. Jafnframt þarf að tryggja þjónustuna meðan á breytingunum stendur og fjármögnun þeirrar lausnar sem verður fyrir valinu. Óvissan má ekki halda áfram mánuðum eða árum saman. Kristnes hefur gegnt mikilvægu hlutverki í íslenskri endurhæfingu um áratugaskeið. Verðmæti staðarins felst bæði í aðstöðunni og staðsetningunni, en ekki síður í þeirri samfelldu þjónustu og sérþekkingu sem þar hefur byggst upp. Við megum ekki láta langvarandi óvissu grafa undan því sem tekið hefur mörg ár að skapa. Endurhæfing á Norðurlandi er ekki aðeins hagsmunamál íbúa svæðisins. Hún er hluti af því að tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og nýta sameiginlega fjármuni skynsamlega. Þess vegna verða stjórnvöld að ljúka vinnunni, leggja valkostina fram með gagnsæjum hætti og taka ákvörðun. Bráðabirgðaástandið má ekki verða varanlegt. Endurhæfing þarf að eiga framtíð á Norðurlandi. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Ólöf Isaksen Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun