Innherji

Hækkun banka­skatts þurrkar út nærri tíu milljarða af verðmati Arion

Hörður Ægisson skrifar
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, en hlutabréfaverð bankans hefur gefið nokkuð eftir síðustu vikur líkt og margra annarra félaga í Kauphöllinni.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, en hlutabréfaverð bankans hefur gefið nokkuð eftir síðustu vikur líkt og margra annarra félaga í Kauphöllinni. Vísir/Vilhelm

Fyrirhuguð hækkun sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki lækkar verðmat Arion um nærri tíu milljarða króna, samkvæmt nýrri greiningu, en bankinn er eftir sem áður sagður á verulegum „afslætti“ miðað við verðlagningu norrænna banka á markaði. Með dekkri horfum í efnahagslífinu er útlit fyrir talsvert meiri virðisrýrnun af lánasafni Arion og það verði um fimm milljarðar á komandi ári.


Tengdar fréttir

Markaðurinn að van­meta svigrúm Arion til út­greiðslna til hlut­hafa

Arion banki ætti að geta skilað hluthöfum sínum um tólf til fjórtán prósenta árlegri heildarávöxtun til næstu þriggja ára, einkum í formi arðgreiðslna og endurkaupa eigin bréfa, að mati greinenda norræns fjárfestingabanka sem telur bréf Arion vera talsvert undirverðlögð á markaði. Fjárfestar eru sagðir vanmeta svigrúmið sem Arion hefur til útgreiðslna.

Arion verðlagður á „spott­prís“ þrátt fyrir sam­bæri­lega arð­semi og norrænir bankar

Þrátt fyrir að skila sambærilegri arðsemi og aðrir helstu bankar á hinum Norðurlöndunum þá er Arion verðlagður á markaði talsvert lægra með hliðsjón af afkomu og eigið fé. Í nýrri hlutabréfagreiningu er Arion því sagður vera „á spottprís“ en verðmat á bankanum er lækkað lítillega og gert er ráð fyrir minni efnahagsumsvifum samtímis háum grunnvöxtum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×