Húsnæði fundið undir brottfararstöð Sunna Sæmundsdóttir skrifar 16. september 2026 11:52 Stefnt er að því að opna brottfararstöðina í húsnæði við Klettatröð á Ásbrú. Sunna fasteignasala Gangi samningaviðræður eftir verður brottfarastöð fyrir útlendinga sem vísa á úr landi opnuð að Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Framkvæmdasýslan auglýsti í sumar eftir húsnæði á Suðurnesjum undir starfsemi brottfararstöðvar. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu bárust alls fjórtán tilboð frá þrettán aðilum. Húsnæðið við Klettatröð 8.Já.is Að lokinni yfirferð hafi þrír kostir komið til greina og að endingu var ákveðið að ganga til samningaviðræðna við félagið Fjöl ehf. um húsnæði við Klettatröð 8 á Ásbrú. Fyrsti samningafundur er á morgun og unnið er að því að hægt verði að opna brottfarastöðina 1. desember líkt og lög kveða á um. Samkvæmt dómsmálaráðuneytinu stendur þó áfram yfir leit að húsnæði undir barna-og fjölskylduúrræði. Húsnæðið er í iðnaðarhverfi á Ásbrú og er því lýst sem 1.815 fermetra skrifstofuhúsnæði í fasteignaskrá. Allt að þrjátíu svefnherbergi Í auglýsingu Framkvæmdasýslunnar sagði að húsnæðið ætti ekki að vera nálægt íbúabyggð og að það þyrfti að geta hýst allt að þrjátíu manns auk þess að vera með aðstöðu fyrir starfsfólk. Þá þyrfti að vera til staðar afgirt útisvæði eða að mögulegt væri að útbúa slíkt svæði. Gert væri ráð fyrir fimmtán til þrjátíu svefnherbergjum með snyrtingu og sturtu eða aðgengi að sameiginlegum snyrtingum og sturtum, þvottahúsi og matsal. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, hefur talið að brottfararstöðin eigi að vera innan athafnasvæðis Isavia á Keflavíkurflugvelli, það er að segja innan flugvallargirðingar. Isavia mótmælti því og sagði upplýsingafulltrúi þeirra að brottfarastöð ætti enga samleið með flugvallarrekstri.
Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjanesbær Hælisleitendur Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira