Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Valur Páll Eiríksson skrifar 16. september 2026 12:02 Joanna Wietrzyk vann keppni helgarinnar eftir að hafa kúkað á sig í henni miðri. Reglum hefur verið breytt og skipuleggjandi beðist afsökunar. Samsett/X Íþróttafyrirtækið Hyrox hefur beðist afsökunar eftir að keppandi í keppni á vegum þess í Peking hélt keppni áfram eftir að hafa kúkað á sig.
Keppnir á vegum Hyrox hafa aukist mjög í vinsældum undanfarin ár en um er að ræða átta kílómetra kapphlaup þar sem keppendur taka eina æfingu eftir hvern kílómetra. Allir keppendur eru á sömu braut og nota sama búnaðinn. Myndefni af heimsmethafa kvenna í Hyrox-greinum, Joönnu Wietrzyk, úr keppni helgarinnar í Peking hefur farið víða á netmiðlum. Þar sést hún með hægðir niður leggi sína er hún heldur áfram keppni. Hyrox hefur sætt gagnrýni vegna málsins og því velt upp hvers vegna Wietrzyk hafi verið heimilað að halda keppni áfram. Það fór svo að hin ástralska Wietrzyk stóð uppi sem sigurvegari í keppni á laugardaginn er hún kláraði brautina á einum klukkutíma, einni mínútu og 23 sekúndum. Moritz Fürste, stofnandi Hyrox, biðst afsökunar á atvikinu og segir hafa átt að grípa inn í. „Hyrox gerði mistök að bregðast ekki við á meðan kapphlaupinu stóð,“ segir í yfirlýsingu frá Fürste. „Það er mitt hlutverk að sjá fyrir atvik sem þessi og ég gerði það ekki.“ „Við höfum þegar hafið vinnu að því að bæta gang keppna okkar og skoðum breytingar á reglubókinni strax. Frá og með þessu augnabliki eru nýjar reglur og ferli til staðar til að koma í veg fyrir að svona komi upp aftur,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. Í nýjum reglum Hyrox hefur keppnisstjórnendum því verið gefin heimild til að draga keppendur úr keppni ef blóð, æla, þvag eða hægðir sem kunna að skapa hættu gagnvart velferð eða vegna mengunar gagnvart öðrum keppendum. Eu tô em choque que no Hyrox em Pequim uma atleta passou mal e sse cagou toda. O negócio é que outros competidores também usava os aparelhos e todos os lugares que ela passou tiveram que ser interditados e desinfectados. Achei ela egoísta porque ficou tudo uma nojeira imagina… pic.twitter.com/2rxbgmlxuZ— Taty 🐿️ (@tatyrck) September 15, 2026
Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira