Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir og Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifa 16. september 2026 10:01 Að vona að bilið minnki er ekki nóg! Nýjustu niðurstöður PISA, frá árinu 2025, sýna að staða íslenskra nemenda heldur áfram að versna. Árangur þeirra í lesskilningi og stærðfræðilæsi er lakari en árið 2022 og Ísland er undir meðaltali OECD í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum. Staða nemenda með innflytjendabakgrunn er sérstaklega alvarleg. Aðeins 28% þeirra ná grunnhæfni í lesskilningi, samanborið við 63% nemenda sem ekki hafa erlendan bakgrunn. Niðurstöðurnar snúast þó ekki aðeins um námsárangur. Nemendur af erlendum uppruna upplifa síður en aðrir að þeir tilheyri skólasamfélaginu og finna til minna öryggis. Íslenska skýrslan bendir á að hvergi meðal OECD-ríkjanna sé meiri munur eftir uppruna nemenda á tilfinningu þeirra fyrir fullgildi í skólanum. Þessar niðurstöður eru skýr viðvörun. Þær sýna að íslenska skólakerfið stendur frammi fyrir töluverðri áskorun. Það tryggir nemendum af erlendum uppruna hvorki nægilega sterk tækifæri til náms né fulla þátttöku í skólasamfélaginu. Umræddir nemendur búa yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu en þurfa jafnframt markvissan stuðning til að ná tökum á íslenskum námsorðaforða og taka virkan þátt í skólastarfi. Það er því brýnt að skólar hafi aðgang að námsefni og kennsluaðferðum sem rannsóknir hafa sýnt að geta eflt námsmál, virk samskipti, sjálfstraust og þátttöku nemenda. Námsefnið og kennsluaðferðin Samræðufélagar (Talking Partners) getur verið mikilvægur hluti í að bregðast við stöðunni. Aðferðin byggist á skipulögðum samtölum um efni sem bekkurinn er að fást við og miðar að því að byggja upp sjálfstraust í samræðum um námsefnið og í samskiptum við jafnaldra. Um er að ræða inngrip í 10 vikur þar sem þrír nemendur í einu fá þjálfun í að tjá hugsun sína, hlusta, spyrja spurninga, útskýra og nota tungumálið til náms. Aðferðinni er beitt þrisvar sinnum í viku í 25 mínútur í senn. Af þessu má sjá að nemendur öðlast svigrúm til að æfa sig á öruggan hátt og byggja upp sjálfstraust áður en þeir þurfa að tjá sig um námsefnið frammi fyrir stærri hópi. Aðferðin styður því ekki aðeins við íslenskunám heldur einnig við faglegt nám, félagslega þátttöku og tilfinningu nemenda fyrir því að tilheyra skólasamfélaginu. Árangur af Samræðufélögum hefur verið rannsakaður í skólum í Englandi, þaðan sem aðferðin kemur. Niðurstöður þar sýndu greinilegar framfarir í notkun ensku sem námsmáls og aukna þátttöku í námi. Námsefnið hefur verið þýtt og staðfært á íslensku og kennurum staðið það til boða hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) síðan árið 2018 og í samstarfi við MMS frá árinu 2024. Til að tileinka sér námsefnið þurfa kennarar að sitja námskeið í einn og hálfan dag. Kennarar nemenda með erlendan bakgrunn sem hafa nýtt sér aðferðina eru sammála um að markviss þjálfun geti stytt þann tíma sem það tekur nemendur að verða virkir þátttakendur í kennslustundum á íslensku. En það eitt að bjóða upp á námskeið nægir þó ekki. Til að ný aðferð festi sig í sessi og skili árangri þurfa kennarar tíma til að kynna sér hana, prófa markvisst í kennslu, ígrunda reynsluna og þróa verklagið í samstarfi við starfsfélaga. Þeir þurfa jafnframt stuðning skólastjórnenda til koma aðferðinni fyrir í erli dagsins, faglega ráðgjöf og eftirfylgd. PISA-niðurstöður síðustu 10 ára eða svo sýna að ekki er nóg að vona að bilið minnki af sjálfu sér. Menntayfirvöld þurfa að tryggja skólum raunverulegt svigrúm og fjármagn til að innleiða gagnreynt námsefni og aðferðir á borð við Samræðufélaga. Það virðist stundum vera Akkilesarhæll þegar kennarar hafa setið námskeið um kennsluaðferð sem þeir hafa fulla trú á en reynist síðan erfitt að finna tíma og stað í eigin kennslu og stundaskrá þegar komið er aftur til daglegra starfa. Slík fjárfesting er ekki viðbótarverkefni heldur brýnn þáttur í að byggja upp réttlátt og inngildandi skólakerfi þar sem allir nemendur fá tækifæri til að læra, láta rödd sína heyrast og njóta hæfileika sinna og umfram allt: Ná árangri! Höfundar eru Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri og Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, sérfræðingur í ÍSAT (íslenska sem annað tungumál) við Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun