Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar 15. september 2026 09:30 Fyrir lítið ferðaþjónustufyrirtæki er fátt óþægilegra en að vakna við fréttir af því að enn ein fámenn starfsstétt í fluginu sé búin að boða til verkfalls 23.september nk. Ekki vegna þess að við gerum lítið úr rétti fólks til að berjast fyrir sínum kjörum, heldur vegna þess að afleiðingarnar eru í engu hlutfalli við stærð deilunnar. Ísland er eyja. Fyrir ferðaþjónustuna eru greiðar flugsamgöngur ekki aukaatriði heldur forsenda starfseminnar. Þegar flug stöðvast er ekki aðeins verið að þrýsta á einn atvinnurekanda við samningaborðið heldur er í reynd skrúfað fyrir aðgang tugþúsunda gesta að hundruðum íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja sem eiga engan þátt í deilunni. Áhrifin einskorðast heldur ekki við ferðaþjónustu því að þessir gestir sem komast ekki til landsins hefðu annars keypt vörur og þjónustu af fjölda annarra fyrirtækja. Verkfall fámenns hóps hefur víðtækar neikvæðar afleiðingar Þetta er því miður orðið reglulegt vandamál. Í umræðu um verkföll flugumferðarstjóra undanfarin ár hefur verið bent á þá sérkennilegu stöðu að mjög fámenn stétt geti haft það í hendi sér að loka landi sem hefur nær enga aðra raunhæfa leið til að tengjast umheiminum. Afleiðingarnar lenda á farþegum, hótelum, ferðaskrifstofum, bílaleigum, afþreyingarfyrirtækjum, veitingastöðum og starfsfólki þeirra um allt land. Fyrir lítið fyrirtæki eru afleiðingarnar af svona aðgerðum harkalegar. Bókanir falla niður þegar hópar og fólk á eigin vegum komast ekki til landsins, en hins vegar er búið að leggja í allan kostnað við móttöku þeirra samt sem áður. Það þýðir að tekjurnar hverfa en kostnaðurinn gerir það ekki. Ferðamenn koma heldur ekki til Íslands af sjálfum sér. Það hefur þurft margra ára fjárfestingu peninga og vinnu í markvisst markaðsstarf til að skapa eftirspurn eftir Íslandi og sífelld hætta á verkföllum fámennra hópa sem skrúfa fyrir flug til landsins byggir upp vantraust á ferðalögum til Íslands og skemmir fyrir þessu starfi. Tjónið lendir á fyrirtækjum sem eiga enga aðild að deilunni Það er sérstaklega slæmt að þessi óvissa skuli aftur skapast á háannatíma. September er stór mánuður í íslenskri ferðaþjónustu þar sem 7500 gestir koma til landsins á hverjum degi að jafnaði. Það þýðir að hver verkfallsdagur sem lokar gáttinni inn í landið getur kostað samfélagið um tvo milljarða króna í tapaðar útflutningstekjur. Samningsaðilar verða auðvitað að leysa sína kjaradeilu. En samfélagið verður líka að þora að ræða stærri spurninguna: Er eðlilegt að örfáir tugir eða hundruð starfsmanna geti með vinnustöðvun valdið tugum eða hundruðum ótengdra fyrirtækja gríðarlegu tjóni og í reynd lokað landinu? Verkfallsrétturinn er mikilvægur, en þegar áhrif verkfallsins ná langt út fyrir hinn eiginlega vinnustað fylgir honum líka mikil ábyrgð og það er ekki sanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki skuli endalaust þurfa að bera tjónið af síendurteknum verkföllum flugstétta. Höfundur er eigandi Hótel Breiðdalsvík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar