Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar 15. september 2026 07:32 Hugsum aðeins um Ísland fyrir tuttugu árum. Hversu fjölbreytt var úrval veitingastaða, menningar og afþreyingar? Hversu margt spennandi var í boði fyrir Íslendinga sem vildu njóta alls þess sem Ísland hefur upp á að bjóða? Svarið er einfalt. Ekki svo ýkja mikið. Á síðustu tveimur áratugum hefur framboðið gjörbreyst. Ferðaþjónustan hefur ekki bara skapað útflutningstekjur og störf heldur skilar hún nú um 200 milljörðum króna í beinar skatttekjur á ári. Hún hefur líka skapað frjóan jarðveg fyrir nýsköpun. Um allt land hafa frumkvöðlar í ferðaþjónustu byggt upp fyrirtæki og upplifanir út frá íslenskri náttúru, menningu, mat, sögu og hugviti. Stór hluti þeirra er lítil og meðalstór fjölskyldufyrirtæki. Þannig hafa orðið til veitingastaðir, kaffihús, baðlón, söfn, sýningar og afþreying sem við Íslendingar getum sjálf notið. Margt af þessu hefði tæplega rekstrargrundvöll hjá jafn fámennri þjóð án erlendra gesta. Lífið úti á landi Áhrifin eru hvergi sýnilegri en úti á landi. Ferðaþjónustan hefur skapað störf og tækifæri sem gera ungu fólki kleift að byggja sér bjarta framtíð í heimabyggð. Fleiri fyrirtæki þýða fleiri og fjölbreyttari störf sem aftur styrkja grundvöll fyrir verslun, veitingarekstur og aðra þjónustu. Blómlegt atvinnulíf skapar sterkari samfélög og þar hefur ferðaþjónustan gegnt lykilhlutverki. Þetta er verðmætasköpun sem mælist í lifandi og blómlegum samfélögum um allt land. Stækkum kökuna Þessi jákvæða þróun getur haldið áfram. Um allt land eru tækifæri til að skapa ný fyrirtæki og upplifanir sem laða að verðmæta ferðamenn, lengja dvöl þeirra og dreifa þeim víðar um landið. Þannig verða til fleiri störf, meiri viðskipti og auknar skatttekjur, um leið og samfélögin okkar verða sterkari og skemmtilegri. Þess vegna finnst mér umræðan um skattlagningu ferðaþjónustunnar stundum byrja á röngum enda. Í stað þess að sækja sífellt meiri skatttekjur til fyrirtækjanna sem fyrir eru eigum við að skapa rekstrarumhverfi sem hvetur til fjárfestingar og nýsköpunar. Stækkum kökuna í stað þess að taka sífellt stærri sneið af henni. Umræðan snýst ekki um að ferðaþjónustan vilji greiða minna, heldur hvernig við getum hámarkað verðmæti hennar svo hún skili þjóðinni enn meiru. Gerum Ísland enn skemmtilegra Markmiðið ætti að vera að auka verðmæti hvers ferðamanns, lengja dvöl þeirra og dreifa þeim víðar um landið. Þannig stækkum við kökuna. Til þess þurfum við sterkt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi sem virkjar eldmóð og hugvit frumkvöðla til að byggja áfram upp fyrirtæki, upplifanir og þjónustu sem gera Ísland eftirsóttara og skemmtilegra fyrir okkur öll. Höfundur er annar stofnenda Lava Show Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar