Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar 14. september 2026 14:02 Kaldvík hefur nú fengið starfs- og rekstrarleyfi til að ala tíu þúsund tonn af laxi í sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Það er erfitt að horfa upp á þessa niðurstöðu, sérstaklega þegar haft er í huga hversu lengi heimafólk og náttúruverndarsamtök hafa barist gegn leyfisveitingunni og hversu afgerandi andstaðan hefur verið. Ég er ekki frá Seyðisfirði og get ekki talað fyrir hönd þeirra sem þar búa. Það geta heimamenn best gert sjálfir. En sem forseti Ungra umhverfissinna get ég talað fyrir hönd ungs fólks sem vill búa í samfélagi þar sem náttúran er varðveitt til framtíðar og þar sem ákvarðanir stjórnvalda byggja á traustum gögnum, vandaðri stjórnsýslu og almannahagsmunum. Ungir umhverfissinnar hafa um árabil vakið athygli á neikvæðum áhrifum sjókvíaeldis og við höfum fylgst vel með þessari baráttu, stutt við önnur náttúruverndarsamtök og heimafólk og séð hversu mörgum spurningum hefur verið ósvarað. Þegar leyfi er veitt þrátt fyrir þetta er það eins og að byggja hús á sandi, það rýrir traust almennings á stjórnsýslunni í heild sinni. Og þá verðum við að spyrja okkur: Hvernig samfélagi viljum við búa í til framtíðar? Það sem stendur upp úr eftir öll þessi ár snýst ekki einungis um eitt fiskeldisleyfi. Þetta snýst um traust á stjórnsýslunni og lýðræðinu. Hvað þýðir það þegar íbúar lýsa endurtekið yfir andstöðu sinni en sjónarmið þeirra virðast svo hafa engin áhrif á niðurstöðuna? Hvað þýðir það þegar ítrekað hafa komið fram alvarlegar athugasemdir við gögn, mat á umhverfisáhrifum og málsmeðferð, en samt er haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist? Þegar mál eru jafn umdeild og þetta hlýtur að vera sérstaklega mikilvægt að ferlið sé vandað, að allar athugasemdir séu teknar alvarlega og rannsakaðar til hlítar. Góð stjórnsýsla snýst ekki bara um að hakað sé í rétta reiti á eyðublaði. Hún snýst um að hlusta á gagnrýni, bregðast við henni af fagmennsku og tryggja að ákvarðanir séu teknar með almannahagsmuni að leiðarljósi. En þetta snýst líka um framtíðarsýn. Sjókvíaeldi er oft sett fram sem nauðsynleg leið til atvinnuuppbyggingar og byggðafestu úti á landi. Það er ósanngjarnt gagnvart smáum samfélögum að láta eins og valið standi á milli náttúruverndar og þess að ungt fólk geti séð framtíð sína í heimabyggð. Við þurfum ekki að fórna fjörðum til að skapa störf, efla nýsköpun og eiga öflug samfélög. Við getum byggt upp atvinnulíf sem nýtir náttúruna án þess að ganga á hana. Heilbrigt umhverfi á ekki að vera hindrun fyrir framtíð byggðanna heldur ein af forsendum hennar. Þar reynir á ríkisstjórnina. Í aðdraganda kosninga töluðu stjórnarflokkarnir um mikilvægi þess að vernda Seyðisfjörð og lögðu áherslu á að almannahagsmunir ættu að vega þyngra en sérhagsmunir. Nú gefst þeim tækifæri til að sýna hvað þau orð þýða í framkvæmd. Fólk segir reglulega að starf okkar sé mikilvægt vegna þess að það þurfi að veita stjórnvöldum aðhald. Ég tek undir það. En aðhald hefur aðeins merkingu ef stjórnvöld eru tilbúin að hlusta. Annars verður þátttaka almennings að formsatriði: fólk fær að segja sína skoðun, en hún hefur ekkert að segja um niðurstöðuna. Við í Ungum umhverfissinnum ætlum áfram að veita stjórnvöldum þetta aðhald. Í Tunglinu, framhaldi af Sólinni, þar sem við metum stefnur stjórnmálaflokkanna í umhverfis- og loftslagsmálum, munum við á næsta ári bera saman kosningaloforðin við það sem stjórnmálaflokkarnir gera í raun. Því það er ekki nóg að lofa því að gera hlutina öðruvísi. Það þarf að gera þá öðruvísi. Við stöndum með Seyðisfirði, heimafólki og þeim náttúruverndarsamtökum sem hafa barist fyrir vernd fjarðarins. Við stöndum fyrir vernd íslenskrar náttúru, lífríkis og lýðræðis. Við þurfum ekki að velja á milli lifandi samfélaga og verndaðrar náttúru. Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar. Höfundur er forseti Ungra umhverfissinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun