Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar 14. september 2026 12:01 Ríkisstjórnin leitar allra leiða þessa dagana til að leggja hærri álögur á fólk og fyrirtæki í landinu til að standa undir sístækkandi ríkinu. Fyrir tæpu ári síðan hækkuðu skattar um 30 milljarða og nú er verið að boða rúma 34 milljarða í skatta – og gjaldahækkanir á almenning og fyrirtæki. Á tólf mánuðum eru skattar hækkaðir um 64 milljarða. Allir eiga að herða sultarólina, nema ríkið, sem heldur áfram að fitna eins og púkinn á fjósbitanum. En hvernig væri ef ríkisstjórnin liti aðeins inná við og byrjaði á því að taka til í eigin ranni? Það væri til dæmis hægt að leggja niður fjölmiðlanefnd, Mannréttindastofnun, Áfengis og tóbaksverslun ríkisins, Jafnréttisstofu (það er nóg að hafa kærunefnd jafnréttismála), Neytendastofu, Matvælasjóð svo eitthvað sé nefnt. Síðan er það tímaskekkja að skattgreiðendur séu að halda úti 300 manna stofnun fyrir tíu milljarða á ári við að spila dægurtónlist, setja efni á TikTok og gera hlaðvörp, allt í beinni samkeppni við einkarekna fjölmiðla. Skattgreiðendur borga um sjö milljarða í Ríkisútvarpið sem síðan sækir aðra þrjá milljarða í auglýsingatekjur. Á meðan berjast frjálsir fjölmiðlar í bökkum. Ef ríkisstjórninni er alvara með að hagræða í rekstri ríkisins mætti afnema útvarpsgjaldið og spara þar með hjónum um 50 þúsund krónur á ári. Það munar um minna. Árið er 2026. Ríkisfjölmiðill í núverandi mynd, rekinn af skattgreiðendum, er tímaskekkja. Bruðl og óþarfa í rekstri ríkisins er víða að finna. Það er lágmarksvirðing gagnvart vinnandi fólki í landinu, skattgreiðendum, að ríkið taki fyrst til heima hjá sér, áður en seilst er enn dýpra í vasa fólksins í landinu. Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jens Garðar Helgason Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin leitar allra leiða þessa dagana til að leggja hærri álögur á fólk og fyrirtæki í landinu til að standa undir sístækkandi ríkinu. Fyrir tæpu ári síðan hækkuðu skattar um 30 milljarða og nú er verið að boða rúma 34 milljarða í skatta – og gjaldahækkanir á almenning og fyrirtæki. Á tólf mánuðum eru skattar hækkaðir um 64 milljarða. Allir eiga að herða sultarólina, nema ríkið, sem heldur áfram að fitna eins og púkinn á fjósbitanum. En hvernig væri ef ríkisstjórnin liti aðeins inná við og byrjaði á því að taka til í eigin ranni? Það væri til dæmis hægt að leggja niður fjölmiðlanefnd, Mannréttindastofnun, Áfengis og tóbaksverslun ríkisins, Jafnréttisstofu (það er nóg að hafa kærunefnd jafnréttismála), Neytendastofu, Matvælasjóð svo eitthvað sé nefnt. Síðan er það tímaskekkja að skattgreiðendur séu að halda úti 300 manna stofnun fyrir tíu milljarða á ári við að spila dægurtónlist, setja efni á TikTok og gera hlaðvörp, allt í beinni samkeppni við einkarekna fjölmiðla. Skattgreiðendur borga um sjö milljarða í Ríkisútvarpið sem síðan sækir aðra þrjá milljarða í auglýsingatekjur. Á meðan berjast frjálsir fjölmiðlar í bökkum. Ef ríkisstjórninni er alvara með að hagræða í rekstri ríkisins mætti afnema útvarpsgjaldið og spara þar með hjónum um 50 þúsund krónur á ári. Það munar um minna. Árið er 2026. Ríkisfjölmiðill í núverandi mynd, rekinn af skattgreiðendum, er tímaskekkja. Bruðl og óþarfa í rekstri ríkisins er víða að finna. Það er lágmarksvirðing gagnvart vinnandi fólki í landinu, skattgreiðendum, að ríkið taki fyrst til heima hjá sér, áður en seilst er enn dýpra í vasa fólksins í landinu. Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun