Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Smári Jökull Jónsson skrifar 14. september 2026 07:42 Ulf Kristersson forsætisráðherra ræðir við fjölmiðla á kosningavöku Moderaterna í gærkvöldi. Vísir/EPA Niðurstöður þingkosninga í Svíþjóð eru enn óráðnar en flest bendir þó til þess að ríkisstjórn hægri manna sé fallin. Óljóst er þó hvernig stjórnarandstaðan ætlar að setja saman ríkisstjórn og stjórnmálaskýrandi sænska ríkissjónvarpsins segir að framundan sé langt pólitískt haust.
Fádæma spenna var þegar talning atkvæða í sænsku þingkosningunum hófst í gær. Fljótlega varð ljóst að munurinn á milli hægri blokkar ríkisstjórnarinnar og vinstri blokkar stjórnarandstöðunnar var minni en skoðanakannanir höfðu gefið til kynna og þingmenn færðust á milli blokkanna. Nú þegar 94 prósent atkvæða hafa verið talin skilja aðeins tæplega þrjátíu þúsund atkvæði og þrjú þingsæti fylkingarnar að. Allt útlit er þó fyrir að ríkisstjórn hægri manna sé fallin. Stjórnarandstöðuflokkarnir ná samkvæmt núverandi stöðu 176 þingsætum en stjórnarflokkarnir 173. Ekki fengið lægra fylgi í 98 ár Svíþjóðardemókratar, sem eru stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar, tapar fylgi í fyrsta sinn frá því þeir komust á þing árið 2010 og þá náðu Frjálslyndir yfir fjögurra prósenta þröskuldinn til þingsetu. Jafnaðarmenn eru stærsti flokkurinn með 28,1 prósent fylgi en flokkurinn hefur ekki fengið minna fylgi síðan árið 1928. Það sem gerist næst er að á miðvikudaginn verða talin atkvæði sem bárust erlendis frá sem og utankjörfundaratkvæði sem bárust seint og þann 28. september kemur nýtt þing saman í fyrsta skipti. Fyrst daginn eftir að nýtt þing kemur saman getur forseti þingsins komið með tillögu að forsætisráðherra sem þá yrði kosið um. Úrslitin ekki ljós fyrr en á miðvikudag Þetta gæti þó orðið þrautin þyngri. Að sögn Mats Knutson, stjórnmálaskýranda sænska ríkissjónvarpsins, þýða úrslitin að stjórnarmyndunin verður erfið bæði til hægri og vinstri og gætu flokkar þurft að leita yfir miðjuna til samstarfs. Takist það ekki gæti þurft að kjósa að nýju. „Dramatíkin á sunnudagskvöldið þýðir að endanleg úrslit verða ekki ljós fyrr en á miðvikudag en niðurstöðurnar benda til naums sigurs stjórnarandstöðunnar. Spurningin er hins vegar hvernig hún ætlar sér að mynda ríkisstjórn. Vinstriflokkurinn hefur krafist þess að sitja í ríkisstjórn en Miðflokkurinn jafnframt sagt að hann muni ekki starfa með Vinstriflokknum í ríkisstjórn,“ segir Knutson á heimasíðu SVT en bæði Vinstri- og Miðflokkurinn eru hluti vinstri blokkar stjórnarandstöðunnar. „Annar þessara flokka verður að gefa eftir til að Magdalena Andersson [leiðtogi Jafnaðarmanna] geti orðið forsætisráðherra nýrrar vinstri stjórnar. Ef flokkarnir gefa eftir má þó búast við umræðum innan flokkanna um svik við kjósendur.“ Útlit fyrir langt pólitískt haust Knutson segir að annar möguleiki fyrir Andersson sé að mynda miðjustjórn en vandamálið sé að hvorki Frjálslyndir né Kristilegir demókratar virðast vera áhugasamir um að vera hluti af slíkri stjórn. Staðan sé hins vegar álíka þröng fyrir Ulf Kristersson forsætisráðherra og formann hófsama hægri flokksins Moderaterna. „Til að Kristersson geti orðið forsætisráðherra verður hann að tryggja sér, stuðning Miðflokksins, að minnsta kosti óbeinan stuðning. Miðflokkurinn hefur aftur á móti verið skýr með þá afstöðu sína að styðja ekki ríkisstjórn sem Svíþjóðardemókratar sitja í á sama tíma og Svíþjóðardemókratar hafa krafist sæta við ríkisstjórnarborðið verði hægri stjórn við völd,“ segir Knutson. „Það má því segja að staðan sé læst beggja megin og útlit fyrir langt pólitískt haust.“
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira