Formúla 1

Antonelli stefnir hrað­byri í átt að heims­meistara­titli

Aron Guðmundsson skrifar
Antonelli í keppni dagsins.
Antonelli í keppni dagsins.

Ítalinn Kimi Antonelli, ökuþór Formúlu 1 liðs Mercedes, er að stinga af í baráttunni um heimsmeistaratitilinn í mótaröðinni. Kimi vann fyrsta kappaksturinn á nýrri braut í Madríd í dag. 

Með sigrinum er Kimi nú með 81 stigs forystu á toppi stigakeppninnar á liðsfélaga sinn hjá Mercedes og stefnir hraðbyri í áttina að sínum fyrsta heimsmeistaratitli. 

Fjórfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen hjá Red Bull Racing kom annar í mark í dag, rétt á undan núverandi heimsmeistaranum Lando Norris hjá McLaren. 

Charles Leclerc hjá Ferrari kom fjórði í mark og það rétt á undan George Russell hjá Mercedes. Bilun kom upp í bíl Lewis Hamilton hjá Ferrari sem varð til þess að hann þurfti að hætta keppni snemma í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×