Seðlabankinn bætir í gjaldeyriskaupin þegar evran fór undir 140 krónu múrinn
Ekkert lát er á gengisstyrkingu krónunnar, meðal annars drifin áfram af góðum viðskiptakjörum í sumum útflutningsgreinum og innflæði í ríkisverðbréf, og í vikunni fór hún undir gildið 140 gagnvart evrunni í fyrsta sinn í fjögur ár. Seðlabankinn ákvað á sama tíma að bæta í reglubundin gjaldeyriskaup sín en segist samt telja að þau hafi „ekki teljandi áhrif“ á gengið við núverandi aðstæður.
Tengdar fréttir
Raungengið áfram í hæstu hæðum nema það komi til áföll í útflutningsgreinum
Afar hátt afurðaverð í sjávarútvegi og verðhækkanir á áli samhliða því að vægi gagnaveranna í útflutningstekjum þjóðarbúsins fer vaxandi mun sennilega valda því að hliðra raungenginu til lengri tíma, að sögn greinenda Acro, en starfsemi gagnaveranna virðist ekki mjög næm fyrir háu raungengi. Skert samkeppnishæfni þjóðarbúsins vegna hás raungengis gæti því verið komin til að vera, í bili að minnsta kosti, nema það komi til áföll í útflutningsgreinum.
Fjárfestar bæta hratt í framvirku stöðuna til að verjast gengisstyrkingu
Áhugi fjárfesta og innlendra útflutningsfyrirtækja á að verja sig fyrir mögulegri gengisstyrkingu krónunnar hefur farið ört vaxandi á undanförnum mánuðum en hrein framvirk gjaldeyrisstaða með krónunni hefur núna ekki verið meiri frá því á sumarmánuðum ársins 2024. Á sama tíma eru lífeyrissjóðir farnir að bæta nokkuð í gjaldeyriskaup sín sem eru að nálgast að verða jafn mikil og allt árið í fyrra.
Krónan styrkist þrátt fyrir metkaup lífeyrissjóða á gjaldeyri í júlí
Eftir að hafa haft afar hægt um sig í gjaldeyrisviðskiptum á liðnu ári hafa umsvif lífeyrissjóðanna margfaldast það sem af er þess ári. Þrátt fyrir metkaup sjóðanna í júlímánuði hélt gengi krónunnar áfram að styrkjast, en hlutdeild lífeyrissjóða í heildarviðskiptum á gjaldeyrismarkaði er lítil.
Krónan flökt mun minna gagnvart evru síðustu ár en margar aðrar myntir
Gengisflökt krónunnar gagnvart evru hefur minnkað verulega frá árinu 2023 og er talsvert minna annarra helstu mynta, en þar spilar meðal annars inn í jafnvægi á utanríkisviðskiptum og sveiflujafnandi hlutverk Seðlabankans og lífeyrissjóða. Þrátt fyrir tugmilljarða innflutning vegna uppbyggingar gagnavera var afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum á fyrsta fjórðungi ársins.