Fótbolti

Lagði upp á leið í undan­úr­slit

Valur Páll Eiríksson skrifar
Tómas Bent þegar hann skoraði fyrir Hearts á dögunum.
Tómas Bent þegar hann skoraði fyrir Hearts á dögunum. vísir/getty

Hearts komst í kvöld í undanúrslit skoska deildabikarsins þökk sé 3-0 útisigri á Stenhousemuir.

Stenhousemir er í næst efstu deild, þó í efsta sæti hennar, en búist var fastlega við sigri Hearts í kvöld.

Tómas Bent Magnússon byrjaði á miðju Hearts og spilaði 65 mínútur í leik kvöldsins. Hann lagði upp fyrsta markið fyrir JJ Williams á 35. mínútu en Úgandamaðurinn Rogers Mato skoraði annað mark Hearts fjórum mínútum síðar.

Yan Dhanda innsiglaði þá 3-0 sigur Hearts í síðari hálfleiknum.

Hearts er því komið í undanúrslit skoska deildabikarsins en andstæðingurinn kemur í ljós eftir helgi þar sem enn á eftir að leika hina þrjá leiki 8-liða úrslitanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×