Sport

Enskt hlað­borð á laugar­degi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mac Allister skoraði sigurmark Liverpool í miðri viku. Finnur Liverpool annan sigur í dag?
Mac Allister skoraði sigurmark Liverpool í miðri viku. Finnur Liverpool annan sigur í dag? Vísir/Getty

Það er aldeilis hægt að hlamma sér í sófann og glápa á enska fótboltann á þessum ágæta laugardegi þar sem sjö leikir er á dagskrá á Sýn Sport. Einnig er hægt að fylgjast með golfi og Formúlu 1.

Fimm leikir eru á dagskrá klukkan 14:00 í ensku úrvalsdeildinni og fylgst verður með þeim öllum samtímis í Doc Zone Hjörvars Hafliðasonar á Sýn Sport frá klukkan 13:40.

Leikirnir eru eftirfarandi:

  • 14:00 Liverpool – Fulham (Sýn Sport 2)
  • 14:00 Chelsea – Hull (Sýn Sport 3)
  • 14:00 Aston Villa – Nottingham Forest (Sýn Sport 5)
  • 14:00 Crystal Palace – Ipswich (Sýn Sport Ísland 2)
  • 14:00 Bournemouth – Brentford (Sýn Sport Ísland 3)

Að þessum fimm leikjum loknum eru tveir leikir til viðbótar. Tottenham leitar fyrsta sigursins á tímabilinu og fær Everton í heimsókn í síðdegisleiknum sem er í beinni frá 16:20 á Sýn Sport.

Í kjölfarið sækja meistarar Arsenal lið Sunderland heim á Leikvang ljóssins. Sá leikur er einnig á Sýn Sport frá klukkan 18:40.

Einnig er Formúla 1 á dagskrá í dag. Síðasta æfingin fyrir Spánarkappaksturinn er klukkan 10:25 á Sýn Sport Viaplay.

Tímatakan á Spáni er svo klukkan 13:45 á Sýn Sport Viaplay.

Þá má fylgjast með þriðja hring Amgen Irish Open á DP-mótaröðinni í golfi á Sýn Sport 4 frá klukkan 13:30 langt fram eftir degi.

Eftir að tímatökunni lýkur í Formúlunni er þá einn leikur á dagskrá í Þýskalandi. Köln og Werder Bremen eigast við klukkan 16:15 á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×