Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar 10. september 2026 16:01 Eftir nýliðnar sveitastjórnarkosningar var að nýju skipað í ráð og nefndir borgarinnar, eins og lög gera ráð fyrir. Í samstarfssáttmála nýs borgarstjórnarmeirihluta má lesa um áherslur í málefnum eldra fólks. Þar stendur: „Við ætlum að endurvekja öldungaráð borgarinnar og efla samstarf við hagsmunasamtök eldra fólks.“ Þann 1. júlí sl. kom saman nýtt öldungaráð Reykjavíkurborgar og þar var staðfest hverjir sætu í nýskipuðu 7 manna öldungaráði. Aðalfulltrúar eru: Frá meirihluta: Albert Guðmundsson (formaður) og Björn Gíslason frá Sjálfstæðisflokki. Brynjar Níelsson og Alda María Vilhjálmsdóttir til vara. Frá minnihluta: Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frá Samfylkingu og Heiða Björg Hilmisdóttir til vara. Frá heilsugæslunni: Pálmi V. Jónsson lyf- og öldrunarlæknir og til vara Sóley Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur. Fulltrúar eldra fólks: Sigurður Ágúst Sigurðsson, Gunnlaugur Auðunn Júlíusson og Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir öll frá FEB – Félagi eldri borgara í Reykjavík. Til vara eru Hörður Hilmarsson, Guðrún Ósk Jakobsdóttir og Kristján Guðmundsson, einnig öll frá FEB. Það vekur einkum athygli að nú eiga tvö samtök eldra fólks, sem áður áttu sæti í ráðinu, í stærsta sveitarfélagi landsins, Samtök aldraðra og U3A-Reykjavík, ekki lengur fulltrúa í öldungaráði Reykjavíkurborgar. Það er í sjálfu sér undarlegt því eldri borgarar í Reykjavik eru tugi þúsunda og er afar fjölbreyttur hópur sem á sér ólíkar þarfir og langanir. Það er ekki sjálfgefið að eitt hagsmunafélag þeirra endurspegli endilega allan hópinn.Í lögum um þjónustu sveitarfélaga er kveðið á um að starfandi séu öldungaráð innan þeirra og þar séu a.m.k. þrír fulltrúar „félaga eldri borgara“. Viðkomandi félag þarf ekki að heita Félag eldri borgara, heldur vera félag eldri borgara. Það eru ýmis félög eldri borgara víða um land sem heita ýmsum nöfnum, eins og t.d. Aftanskin í Stykkishólmi, Félag eldri Mývetninga, Framtíðin á Seyðisfirði, Perlur á Fáskrúðsfirði, 60+ í Grímsnes- og Grafningshreppi og U3A-Reykjavík, svo dæmi séu nefnd. Öll eru þau félög eldri borgara og því gjaldgeng til að skipa fulltrúa í öldungaráð í sínum sveitarfélögum. Öldungaráð hundsað í miklu hagsmunamáli eldra fólks Frá því þessi formlegi 1. fundur nýs öldungaráðs Reykjavíkurborgar fór fram var enginn annar fundur haldinn í ráðinu áður en afar stórt hagsmunamál eldra fólks í borginni, sérstaklega þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu, var samþykkt í Borgarráðs og afgreitt þar. Hér er að sjálfsögðu um að ræða matarþjónustu borgarinnar sem hundruðir eldri borgara í Reykjavík reiða sig á. Þessar eru helstu breytingarnar: Stórfelld verðhækkun hefur verið gerð á hverri máltíð. Nú verður hvergi hægt að fá hádegisverð á laugardögum og sunnudögum í félagsmiðstöð í Reykjavík og ekki útséð um aðra hátíðisdaga. Hingað til hefur félagsmiðstöðin á Vitatorgi borið fram hádegismat alla daga vikunnar. Sú þjónusta hefur verið afar vinsæl því margir einstæðingar í hópi eldra fólks hefur nytt sér hana, ekki síst til að njóta félagsskap annarra, eldri vina og til að eignast nýja vini – bæði næring fyrir líkama og sál. Heimsending matar fer aðeins fram þrisvar í viku. Rétt að taka fram að þessi ráðstöfun var komin til framkvæmda fyrir nokkru að hætta að senda mat heim til fólks daglega. Það ótrúlega er að það var ekki haldinn fundur í ráðinu til að kynna fyrir því þá stórfelldu breytingu sem hér um ræðir á kjörum eldra fólks í viðkvæmri stöðu í borginni. Þau voru einfaldlega ekki virt viðlits vegna þessa hagsmunamáls.Samráð við hagsmunafélög eldri borgara er lagaleg skylda og á að fara fram í öldungaráðum sveitarfélaga. Í lögum um málefni aldraðra segir í 6. gr.: „Í hverju sveitarfélagi, eða í sveitarfélögum sem eiga samstarf um öldrunarmál og þjónustu við aldraða, skal starfa formlegur samráðsvettvangur er nefnist öldungaráð, þar sem fjallað er um þjónustu við aldraða og framkvæmd og þróun öldrunarmála.“ Samráði „lokið“? Nýji meirihlutinn í borginni hefur kynnt verkefnalista sinn á sérstökum vef þar sem verkefnum er skipt niður eftir því á hversu löngum tíma það eigi að taka að ljúka hverju verkefni.Minni á að á listanum yfir „100 daga“ er verkefnið Efri árin. Þar stendur:„Við ætlum að endurvekja öldungaráð borgarinnar og efla samstarf við hagsmunasamtök eldra fólks.“Eftir að fyrsti fundur nýs öldungaráðs var lokið þ. 1. júlí sl., var bætt við þessu orði við verkefnið: „Lokið.“Það er víst orð að sönnu. Því ekkert samráð var haft við öldungaráðið og fulltrúa hagsmunasamtaka eldra fólks um þá miklu breytingu sem hefur orðið á matarþjónustunni.Engu líkara en öldungaráðið nýja sé með öllu óþarft. Enda er verkefninu um samráð borgarinnar við ráðið og eldra fólk víst „Lokið“ samkvæmt verkefnalista borgarstjórnarmeirihlutans.Ég hef alltaf haldið að svona samráði „lyki“ aldrei. Því brýn úrlausnarefni fyrir eldra fólk hverfa ekki á einni nóttu. Þar verður af nógu að taka og það þarf árvekni allt kjörtímabilið og um ókomna framtíð – eða svo hélt ég í einfeldni minni.Höfundur sat í Öldungaráði Reykjavíkurborgar fyrir hönd FEB 2020-2024 og fyrir hönd U3A-Reykjavík 2024-2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Viðar Eggertsson Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun