Handbolti

ÍBV fær banda­rískan liðs­auka

Andri Broddason skrifar
Gary Phillips og Parkman Cook verða leikmenn ÍBV í vetur.
Gary Phillips og Parkman Cook verða leikmenn ÍBV í vetur. ÍBV

ÍBV hefur fengið tvo bandaríska leikmenn til að spila með félaginu í ár. Leikmennirnir eru hluti af USA Team Handball og er markmið liðsins að þjálfa leikmenn og gera þá klára fyrir Ólympíuleikana 2028 sem haldnir verða í Los Angeles.

ÍBV tilkynnti í dag að tveir eftirsóttir leikmenn væru að ganga til félagsins frá Bandaríkjunum. Íslenska liðið mætti USA Team Handball í sumar þegar félagið var í æfingaferð í Hollandi. Við það byrjuðu félögin að ræða saman en bandaríska liðið var búið að heyra góða hluti um ÍBV.

Þar sem Ólympíuleikarnir árið 2028 verða haldnir í Bandaríkjunum er verið að reyna að hafa bandarísk lið í sem flestum greinum. Ekki hefur verið mikil hefð fyrir handbolta í Bandaríkjunum og því er verið að reyna að byggja lið alveg frá grunni.

USA Team Handball er því að reyna að koma leikmönnum sínum víðs vegar um Evrópu til að spila með liðum þar sem leikmenn fá mikilvæga reynslu og geta þróast meira. Gary Philips og Parkman Cook munu koma frá Bandaríkjunum og verða hluti af liði ÍBV.

Gary Phillips var eftirsóttur af mörgum liðum innan Evrópu en bandaríska liðið taldi best fyrir hann að fara til ÍBV. Hann er örvhent skytta og á möguleika á að verða gríðarlega sterkur leikmaður. Philips var einnig gríðarlegt efni sem leikstjórnandi í amerískum fótbolta og spilaði stöðuna í tvö ár í háskóla í Bandaríkjunum. Hann ákvað þó að velja handboltann.

Parkman Cook kemur einnig til félagsins en hann er frekar ungur. Hann spilar sem miðjumaður eða vinstri skytta og hefur gríðarlega hátt þak. ÍBV mun því vera með tvo sterka Bandaríkjamenn með sér í liði og verður spennandi að sjá hvernig þeim mun ganga hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×