Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar 10. september 2026 09:30 Undanfarið hef ég skrifað þrjár greinar um íslenska lífeyrissjóði: um árangur þeirra sem fjárfesta, hlutverk þeirra sem stórra eigenda og framgöngu þeirra á aðalfundum fyrirtækja. Eftir stendur einföld spurning: Hafa íslenskir lífeyrissjóðir staðið sig nógu vel – bæði sem fjárfestar og sem eigendur? Það er eðlilegt að einstakar fjárfestingar fari illa. Enginn fjárfestir kemst hjá því. En þegar stór tapmál endurtaka sig, margir sjóðir fjárfesta í sömu verkefnum og þeir eru jafnframt stórir eigendur fyrirtækja sem skila veikri arðsemi árum saman, er eðlilegt að spyrja um kerfið í heild. Mig langar því að beina nokkrum spurningum til Landssamtaka lífeyrissjóða. Hvernig er árangurinn? Hafa Landssamtökin gert eða látið gera samanburð á langtímaávöxtun íslenskra lífeyrissjóða og sambærilegra sjóða á Norðurlöndum, að teknu tilliti til áhættu og kostnaðar? Ef íslensku sjóðirnir standa sig vel ætti að vera hægt að sýna fram á það. Ef þeir standa sig verr þarf að skýra hvers vegna. Hafa lífeyrissjóðirnir dregið lærdóm af stórum fjárfestingartöpum? Hafa stærstu tapmálin verið tekin saman og greind? Hefur verið skoðað hvort sömu veikleikar komi aftur: of bjartsýnar forsendur, vanmat á áhættu, ótrygg fjármögnun eða að meira fé sé lagt inn eftir að alvarleg vandamál eru komin í ljós? Og hefur sá lærdómur sannanlega breytt vinnubrögðum? Eru margir sjóðir að taka sömu áhættuna? Það vekur athygli hversu oft margir lífeyrissjóðir fjárfesta í sömu fyrirtækjunum og sömu verkefnunum. Hver sjóður getur talið sína eigin áhættu hóflega. En þegar margir sjóðir taka sömu áhættuna verður stór hluti eftirlaunasparnaðar landsmanna fyrir sama áfallinu ef illa fer. Hver fylgist með þessari sameiginlegu áhættu? Og þegar margir sjóðir enda aftur og aftur í sömu fjárfestingunum, hversu sjálfstæð er þá greining hvers sjóðs í raun? Eru sumir lífeyrissjóðir of litlir? Hér á landi starfa margir sjálfstæðir lífeyrissjóðir. Eru þeir allir nægilega stórir til að byggja upp þá sérþekkingu sem þarf til að meta flóknar fjárfestingar, stýra áhættu og sinna virku eignarhaldi? Hefur verið rannsakað hvort stærð sjóðanna hafi áhrif á rekstrarkostnað, fjárfestingarárangur og faglega getu þeirra? Og ef margir smærri sjóðir fjárfesta að stórum hluta í sömu eignum og stærri sjóðir, hver er þá raunverulegur ávinningur sjóðfélaga af því að reka þá alla sjálfstætt? Hvernig sinna sjóðirnir hlutverki sínu sem eigendur? Lífeyrissjóðirnir eru meðal stærstu eigenda margra íslenskra fyrirtækja. Icelandair er eitt dæmi. Þar hafa lífeyrissjóðir verið stórir hluthafar á sama tíma og félaginu hefur reynst erfitt að skapa viðvarandi arðsemi. Það er ekki hlutverk lífeyrissjóðanna að stjórna fyrirtækjum. En eigendur kjósa stjórn og eiga að veita henni aðhald. Hvaða viðmið nota sjóðirnir til að meta árangur stjórna? Hversu lengi þarf veikur árangur að vara áður en stór eigandi krefst breytinga? Og þegar stjórn verður sjálfkjörin, hvernig birtist þá aðhald stærstu eigendanna? Er stjórnskipan lífeyrissjóðanna enn eðlileg? Margir íslenskir lífeyrissjóðir eiga rætur sínar í kjarasamningum og stjórnir þeirra hafa lengi verið skipaðar fulltrúum launþega og atvinnurekenda. Sögulega eru fyrir því skýrar ástæður. En er þetta enn besta fyrirkomulagið? Lífeyrissjóðirnir fara með eftirlaunasparnað sjóðfélaga. Því er eðlilegt að spyrja hvort sjóðfélagarnir sjálfir eigi ekki að hafa beinna vald yfir því hverjir sitja í stjórnum sjóðanna. Hafa Landssamtökin skoðað hvort tímabært sé að breyta þessu fyrirkomulagi, til dæmis þannig að sjóðfélagar kjósi meirihluta eða alla stjórnarmenn beint? Og hvernig er tryggt að stjórnarmenn sem tilnefndir eru af samtökum atvinnurekenda eða launþega starfi eingöngu í þágu sjóðsins og sjóðfélaga hans? Eiga sjóðfélagar að sjá rökstuðninginn? Það er gagnlegt að birta hvernig lífeyrissjóður greiðir atkvæði á aðalfundi. En mikilvægari spurning er hvers vegna. Eiga sjóðfélagar ekki að geta séð hvaða sjálfstæða greining liggur að baki stuðningi við stjórn, stjórnarlaun, starfskjarastefnu eða aðrar mikilvægar ákvarðanir? Lífeyrissjóðirnir fara með eftirlaunasparnað almennings. Þess vegna er eðlilegt að gera ríkar kröfur um gagnsæi, fagmennsku og ábyrgð. Hver skoðar heildarmyndina? Að lokum stendur stærsta spurningin eftir. Hver metur hvort lífeyriskerfið í heild skili nægilega góðri ávöxtun? Hver fylgist með sameiginlegri áhættu sjóðanna? Hver metur hvort sumir þeirra séu of litlir? Hver skoðar hvort stjórnskipan þeirra sé enn skynsamleg? Og hver tryggir að mistök leiði til raunverulegs lærdóms? Það væri ósanngjarnt að ætlast til þess að lífeyrissjóðir geri aldrei mistök. En það er alls ekki ósanngjarnt að krefjast þess að árangurinn sé mældur, mistökin greind, stjórnskipanin réttlætanleg og ábyrgðin skýr. Íslendingum er skylt að leggja verulegan hluta tekna sinna í lífeyrissjóði. Þess vegna eigum við líka rétt á skýrum svörum um hvernig farið er með þá fjármuni. Ég óska þess að Landssamtök lífeyrissjóða svari þessum spurningum opinberlega. Þetta eru, þegar öllu er á botninn hvolft, peningarnir okkar. Höfundur er framleiðslutæknifræðingur og sjóðfélagi í íslenskum lífeyrissjóðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lífeyrissjóðir Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun