Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Sindri Sverrisson skrifar 9. september 2026 09:32 Erling Haaland skoraði tvennu gegn Porto í gærkvöld. Getty/Bruno Penas Gærkvöldið var ólíkt hjá Mbappé-bræðrunum í Meistaradeild Evrópu. Annar skoraði í sigurleik en hinn missti stjórn á sér eitt augnablik og fékk rautt spjald í afar svekkjandi tapi. Erling Haaland skoraði svo bæði mörk Manchetser City gegn Porto. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins og rauða spjaldið má sjá á Vísi.
Hákon Arnar Haraldsson og aðrir liðsfélagar hins 19 ára Ethan Mbappé hjá Lille hugsa honum eflaust þegjandi þörfina vegna rauða spjaldsins gegn Real Betis í gær. Það fékk Mbappé fyrir olnbogaskot á 56. mínútu, rétt eftir að miðvörðurinn Marc Bartra hafði skorað sitt annað mark og Írinn Troy Parrott komið Real Betis í 3-2, sem urðu úrslit leiksins. Kylian Mbappé og Federico Valverde nýttu sér skelfileg mistök Inter-manna til að koma Real Madrid í 2-0 á fyrstu 23 mínútunum, í 2-1 sigri. Carlos Augusto minnkaði muninn korteri fyrir leikslok. Manchester City hóf sína leiktíð í Meistaradeildinni á góðum 2-0 útisigri gegn Porto. Erling Haaland skoraði bæði mörkin, það fyrra með skalla í upphafi seinni hálfleiks en hið seinna í uppbótartíma. Haaland fékk svo gult spjald í lokin þegar upp úr sauð eftir átök þeirra Pablo Rosario sem fékk einnig gult spjald. Í Þýskalandi vann Dortmund 3-2 sigur gegn Villarreal þar sem öll mörkin komu í seinni hálfleik. Serhou Giurassy skoraði tvennu fyrir Dortmund á fimm mínútum, þegar hann kom liðinu í 3-1, áður en hann skoraði svo óvart sjálfsmark í uppbótartíma en það kom ekki að sök.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Enski boltinn Fleiri fréttir 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Sjá meira