Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sindri Sverrisson skrifar 7. september 2026 13:47 Raul Flores birti þessa gervimynd á Instagram eftir heimsmetið, þar sem hann hafði smellt hundinum Tayzon inn, og minntist síns gamla félaga. @tayzonstrongman Mexíkóinn Raúl Flores vann sig upp úr sorginni við að missa hundinn sinn Tayzon með því meðal annars að leggja hart að sér í lyftingasalnum. Núna á hann heimsmetið í réttstöðulyftu.
Flores kallar sig Tayzon og er með tattú á ógnarstórum upphandlegg sínum með mynd af hundinum sem honum var svo annt um. Hann var fljótur að benda á tattúið eftir að hafa lyft 511 kg í réttstöðulyftu á heimsmeistaramóti í Birmingham í Englandi um helgina, og þannig slegið heimsmet Hafþórs Júlíusar Björnssonar um eitt kíló. „Í dag lét ég ekki aðeins draum rætast. Í dag efndi ég loforð,“ skrifaði Flores svo á Instagram-síðu sína og hélt áfram: „Fyrir mörgum árum, þegar hundurinn minn TAYZON dó, lofaði ég honum að einn daginn yrði nafn hans þekkt um allan heim. Að einn daginn, í einhverri kraftakeppni, myndu menn heyra þetta nafn og vita hvað lægi að baki því. Í dag, á sviði Giants Live Strongman, þegar ég lyfti 511 kílóunum sem gerðu mig formlega að sterkasta manni heims í réttstöðulyftu, skildi ég að ég var ekki bara að lyfta stöng. Ég var að lyfta loforði. TAYZON er ekki lengur hér til að sjá það, en nafn hans er það. Það er á handleggnum mínum, í sögu minni, í hverri æfingu, í hverri fórn og frá og með deginum í dag, í heimssögu kraftakeppna. Takk allir sem trúðuð á mig þegar engin met, titlar eða sviðsljós voru til staðar. Takk fjölskyldan mín, teymið mitt og hver og einn sem stóð að baki þessari vegferð. Og til þín, TAYZON… Ég lofaði þér því. Ég gerði þig frægan. Okkur tókst það.“ View this post on Instagram A post shared by GIANTS LIVE (@giantslivestrongman) Flores er aðeins 26 ára gamall og því í raun rétt að hefja sinn aflraunaferil. Áhugavert verður að fylgjast með framgöngu hans en fyrir ári síðan lyfti hann í fyrsta sinn meira en hálfu tonni, eða 504,04 kg, en það var á æfingu. Mesta þyngd sem hann lyfti í keppni á síðasta ári var 480 kg. Eddie Hall var sá fyrsti til að lyfta hálfu tonni í keppni, árið 2016, en Hafþór sló svo metið árið 2020 og hefur síðan bætt það í tvígang aftur, síðast fyrir árið síðan þegar hann lyfti 510 kg.
Aflraunir Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Sjá meira