Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar 4. september 2026 10:02 Ábyrgðarleysi er merkilegt fyrirbæri. Það er mun auðveldara að koma auga á það hjá öðrum en hjá sjálfum sér. Við sjáum það í stjórnmálum, heilbrigðismálum, á vinnustöðum, í fjölskyldum og samböndum. Bent er á annan og gjarnan fylgir ítarleg skýring á því hvað hinn aðilinn gerði rangt. En hvenær varð það samfélagslega eðlilegt að benda á ábyrgð annars og líta svo á að það dragi úr okkar eigin? Þetta sést skýrt í stjórnmálum. Þegar eitthvað fer úrskeiðis hefst gjarnan kapphlaup um að staðsetja ábyrgðina. Stjórnmálamenn benda með beinstífum fingrum hver á annan, mistök mótherjans eru dregin fram og þær staðreyndir sem styrkja eigin málstað fá mest vægi. Það getur verið fullkomlega réttmætt að benda á mistök annarra. En almenningur ætti, þegar hann fylgir fingrinum að þeim sem bent er á, að muna að sá sem bendir stendur sjálfur inni í sömu mynd. Að sýna fram á sök eins fellir ekki niður ábyrgð annars. Ábyrgð er ekki núllsummuleikur. Sama fyrirbæri birtist í hversdagslegri mynd. Foreldri bendir á kennarann, kennarinn á foreldrið. Í sambandi bendir hvor aðilinn á hinn. Sjúklingur getur falið heilbrigðisstarfsfólki alla ábyrgð á eigin heilsu en getur líka verið svo sannfærður um eigin þekkingu að hann hlustar alls ekkert á sérfræðinginn. Á sama hátt getur sérfræðingurinn gleymt því að sjúklingurinn býr yfir upplýsingum um eigin líkama sem hann sjálfur hefur ekki. Ábyrgðin liggur sjaldnast öll á einum stað. Hún tengist ekki heldur stöðu fólks. Við eigum það til að gera ráð fyrir að sá sem hefur peninga og tækifæri sé hagsmunaseggur sem beri meiri ábyrgð, á meðan sá sem býr við erfiðar aðstæður sé fyrst og fremst fórnarlamb þeirra. En hvorug staðan segir okkur ein og sér hvernig manneskjan fer með ábyrgð sína. Sá sem hefur mikið svigrúm getur nýtt það vel, illa eða alls ekki. Sá sem hefur lítið svigrúm getur nýtt það sem þó er til staðar, eða ekki. Ábyrgð snýst því ekki aðeins um hvað við höfum, heldur hvað við gerum við það svigrúm sem við höfum. Þess vegna er mikilvægt að rugla ekki saman ábyrgð og sök. Sök horfir til þess sem gerðist. Ábyrgð nær til þess sem gerist næst. Beinstífi fingurinn er “saksjúkur” og í ákafa sínum við að staðsetja sökina verður hann ábyrgðarlaus. Manneskja getur verið raunverulegt fórnarlamb aðstæðna sem eru alls ekki á hennar valdi. Að ræða ábyrgð hennar á því sem hægt er að gera næst gerir hana ekki ábyrga fyrir því sem kom fyrir hana. Á sama hátt er ekki nóg að sinna eigin hagsmunum til að teljast ábyrgur. Maður getur haldið eigin garði tandurhreinum með því að henda ruslinu yfir girðinguna. Vandamálið er ekki horfið. Það hefur aðeins verið flutt yfir til annarra. Kannski er ein algengasta birtingarmynd ábyrgðarleysis einmitt þessi tilhneiging til að staðsetja ábyrgðina annars staðar. Og fólk ruglar þessu við ábyrgð. Og því beinstífari sem vísifingurinn verður, því mikilvægara er að almenningur horfi ekki aðeins þangað sem hann bendir. Hann þarf líka að sjá hver heldur fingrinum á lofti og hvaða hlut sá aðili á sjálfur í þeirri mynd sem hann tilheyrir. Ábyrgð ræðst ekki af því hversu mikil völd eða stjórn við höfum yfir aðstæðunum, heldur af því hvernig við förum með þann hluta sem við getum haft áhrif á. Áfellisdómur beinstífa fingursins hefur hins vegar þau áhrif að hringrásinni er haldið gangandi og orðræðan verður að lúpu: ábyrgð mótherjans stækkar, eigin ábyrgð minnkar og hvor aðili notar hinn til að réttlæta eigin stöðu. Kannski er ábyrgð ekki fólgin í því að finna hverjum er um að kenna, heldur að geta horft á heildarmyndina án þess að hverfa sjálfur út úr henni. Höfundur er mastersnemi í Heildrænum heilsuvísindum. Myndasmiður: Vitvélin Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar